Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2026

Boðavík 2

RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
111.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.300.000 kr.
Fermetraverð
709.937 kr./m2
Brunabótamat
63.050.000 kr.
Byggt 2023
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
25190131
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu, Boðavík 2, 800 Selfossi, einstaklega snyrtilegt endaraðhús.

Um er að ræða fjögurra herbergja raðhús í einu af nýjustu hverfum Selfossbæjar. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með bárujárni og bárujárn er á þaki. Lóðin er frágengin með rúmgóðum sólpalli, heitum potti og geymsluskúr. Geymsluskúr er tvískiptu annars vegar í kalda óeinangraða geymslu fyrir garðhúsgögn ofl. og hins vegar í rúmgóða einangraða geymslu. búið er að planta trjágróðri í lóðamörkum og er lóðin öll hin snyrtilegasta.

Nánari lýsing eignar:
Um er að ræða 111,7 fermetrar íbúð samkvæmt fasteignamati en íbúðin telur samkvæmt teikningu:
Forstofu með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa er rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum.
Borðstofa er rúmgóð einnig en úr borðstofu er rennihurð út á sólpallinn sem snýr á móti suðri.
Eldhúsið er með rúmgóðri snyrtilegri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, span 80 cm. helluborð er í eldhúsi.
Í alrými, stofu borðstofu og eldhúsi er vínyl, vatnsheltparket á gólfi.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu öll með fataskápum og vínyl, vatnsheltparketi á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir með gólfsturtu, upphengdu salerni, innréttingu og línskáp.
Þvottahús/geymsla er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
 
Hér er um að ræða vel skipulagt enda raðhús, snyrtileg eign í alla staði sem er staðsett í göngufæri við nýjasta grunnskóla bæjarins, Stekkjaskóla.

Til að bóka einkaskoðun og fyrir allar nánari upplýsingar, hafið samband:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is



Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureitur - D2-204
Opið hús:25. okt. kl 12:00-13:00
Orkureitur - D2-204
108 Reykjavík
129 m2
Fjölbýlishús
422
1006 þ.kr./m2
129.800.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 3
Bílastæði
Skoða eignina Vorbraut 3
Vorbraut 3
210 Garðabær
116,9 m2
Fjölbýlishús
312
897 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur - D2-404
Opið hús:25. okt. kl 12:00-13:00
Orkureitur - D2-404
108 Reykjavík
127 m2
Fjölbýlishús
422
1086 þ.kr./m2
137.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur - D2-408
Opið hús:25. okt. kl 12:00-13:00
Orkureitur - D2-408
108 Reykjavík
103,7 m2
Fjölbýlishús
322
1059 þ.kr./m2
109.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin