Lifum heima fasteignasala Borgarnesi kynnir:
Tólf hesta hesthús með stóru sérgerði í efra hverfi hesthúsasvæðis Borgfirðings rétt norðan við Borgarnes. Selás 1, hús nr. 102 er skráð 86,7 fm, en raunstærð er stærri þar sem vel nýtt milliloft er ekki talið með í birtum fermetrafjölda.
Sérinngangur er bæði gerðismegnin og hlöðumegin.
Húsið skiptist í sjö stíur fyrir 12 hesta, rúmgóðan gang, hlöðu fyrir 3-4 rúllur með geymslulofti að hluta, hnakkageymslu, salerni og millilofti þar sem er kaffistofa með eldunaraðstöðu, gluggar sem vísa inn í hesthús og þakgluggar.
Vifta er í hesthúsinu og býður hesthúsið því upp á góða aðstöðu fyrir bæði hesta og menn.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is12 hesta hús með 7 stíum- 4 stíur eru fyrir einn hest hver
- 3 stíur eru fyrir tvo hesta hver
- 1 stía er fyrir tvo hesta í hlöðuhlutanum
Hlaða- fyrir 3-4 rúllur
- geymsluloft yfir hluta
Kaffistofa- með eldunaraðstöðu
Rúmgóður gangur er í hesthúsinu ásamt salerni, góðri hnakkageymslu og sér 300 fm gerði.
Svæðið er með einstaka aðstöðu fyrir hesta og menn og hefur undanfarið verið gert mikið til að auka við aðstöðuna, m.a. er komin glæsileg reiðhöll fyrir félagsmenn í viðbót við þá inniaðstöðu sem var fyrir, stór þjálfunargerði eru á svæðinu sem og keppnisvellir. Frábærar reiðleiðir
Húsfélag: Ekki er virkt húsfélag meðal hesthúsanna og því ekki greitt í sameiginlegan sjóð vegna framkvæmda á sameign. Hver og einn hefur séð um sinn hluta.
Upplýsingar úr eignaskiptayfirlýsingu:- hlutfall í heildarhúsi og lóð er alls 28,59%
- engin sérstök réttindi fylgja eignarhlutum og er samkomulag um að hver eign sjái um sitt eigið haugstæði eða aðstöðu til þess að losa í úrgang (skít) og beri kostnað af því.
Hiti, einn mælir (eitt inntak) er fyrir heitt vatn í matshlutanum, eignir 0101 og 0102 sameinuðust um inntak þetta og eru sameiginlegir notendur vatnsins en eign 0103 er fyrir utan þetta lagna inntak. Hlutfallstala í hitakostnaði 40,00%. sérmælt.
Rafmagn: Þrír rafmagnsmælar er fyrir matshlutan þe. einn mælir fyrir hverja eign fyrir sig, eru mælarnir staðsettir innan hverrar eignar fyrir sig.
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is