Fasteignaleitin
Skráð 8. okt. 2026

Hverfisgata 85

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
69.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
1.000.000 kr./m2
Brunabótamat
59.350.000 kr.
Byggt 2019
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25030697
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

*** Hverfisgata 85 - 101 Reykjavík ***

- LAUS VIÐ KAUPSAMNING -

PRIMA Fasteignsala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: Hugguleg og rúmgóð 69.9 fm íbúð á jarðhæð með sérafnotareit við Hverfisgötu 85. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu / borðstofu með útgengi út á 14,3 fm verönd/svalir, svefnherbergi, baðherbergi og 7,9 fm geymslu í kjallara. Sér bílastæði er í bílakjallara. Skjólgóður inngarður með rólum og bekkjum.  Frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur.

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Eldhús er opið með stofu / borðstofu, hvít innrétting með borðplötu úr steini, þar er eldhúseyja með spanhelluborði.
Stofa / borðstofa er með parket á gólfi, útgengt út á 14,3 fm sérafnotaflöt/svalir.
Svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með walk-in sturtu, wc, innréttingu með handlaug og skápum og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í sameign skráð 7,9 m2 samkv. HMS

Bílastæði er í bílakjallara undir húsinu. Lyfta milli hæða.
Í sameign er einnig vagna og hjólageymsla.

Frábærlega staðsett íbúð í fallegu fjölbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur. Skjólgóður inngarður og gönguleiðir eru hannaðar af landslagsarkitekt hússins. Hverfið liggur ákaflega vel við samgöngum og styður vel við bíllausan lífsstíl fyrir þau sem það kjósa.

Nánari upplýsingar veitir:
Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 / oliver@primafasteignir.is

__________________________________________________________________________________________

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Prima fasteignasala ehf.
http://primafasteignir.is

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bárugata 37
Opið hús:11. okt. kl 15:15-16:00
0S6A0656.jpg
Skoða eignina Bárugata 37
Bárugata 37
101 Reykjavík
85,2 m2
Fjölbýlishús
412
879 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (0325)
Hleðslustöð
Opið hús:11. okt. kl 13:00-13:30
stebbi_vefur (20).png
Skoða eignina Laugaborg (0325)
Laugaborg (0325)
105 Reykjavík
84,7 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Hverfisgata 85
Bílastæði
Skoða eignina Hverfisgata 85
Hverfisgata 85
101 Reykjavík
69,9 m2
Fjölbýlishús
211
1000 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Reykjastræti 7 (313)
Hleðslustöð
IMG_4536.JPG
Reykjastræti 7 (313)
101 Reykjavík
130 m2
Fjölbýlishús
211
1115 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin