Fasteignaleitin
Skráð 11. nóv. 2026

Breiðavík 35

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
140.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
604.701 kr./m2
Brunabótamat
71.650.000 kr.
Byggt 1997
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22320841
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignasala kynnir í einkasölu:  Breiðavík 35 - gullfalleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja endaíbúð með sérinngangi á jarðhæð ásamt opnu sér bílastæði undir húsinu. Útgangur út stóran nýja sólpall til suðurs. 

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@aldirfasteignir.is / 895-1098. 


Komið er inn á anddyri um sérinngang, flísar á gólfi og fataskápur.  Innanf anddyri er þvottahús með flísum og skápum.  Stórt bjart opið parketlagt rými sem er hol, stofa, borðstofa og eldhús.  Stofan er björt með gluggum á tvo vegu og útgangi út á stóran nýjan aflokaðan sólpall í suður. Eldhús með fallegri innréttingu og góðu skápaplássi, innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgir. Tvö rúmgóð barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Stórt hjónaherbergi með parketi og góðum fataskápum. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting, gluggi, baðkar og sturtuklefi. Í sameign er sameiginleg hjólageymsla og sérgeymsla íbúðarinnar.

Íbúðin var mikið endurnýjuð að innan 2021-2022 og má þar nefna:
Skipt var um öll gólfefni, bæði flísar og parket.
Skipt var um allar innihurðar og fataskápa.
Baðherbergi var endurnýjað.
Skipt var um innréttingu og tæki í eldhúsi.
Skipt var um alla ofna í íbúðinni.
Haustið 2025 var settur nýr skólgóður sólpallur. 

Íbúðin er með sérafnotareit í suður. Úr herbergjunum er fallegt útsýni til norðurs í átt til Esjunnar. Skráning íbúðarinnar hjá HMS er eftirfarandi: Stærð 140.4 fm. sem skiptist í 110,7 fm. íbúð, 6,3 fm. geymsla í kjallara og 23,4 fm. opið bílastæði undir húsinu. 

Grafarvogur er fjölskylduvænt og eftirsótt íbúðahverfi þar sem náttúrufegurð, góð þjónusta og fjölbreyttir möguleikar til útivistar fara vel saman. Í hverfinu er að finna skóla, leikskóla, íþróttamannvirki, golfvelli og fjölbreytta verslun og þjónustu. Stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir, meðal annars meðfram strandlengjunni og í nálæg útivistarsvæði. Grafarvogur býður þannig upp á notalegt og rólegt umhverfi, þar sem gott er að ala upp börn og njóta daglegs lífs, en jafnframt eru greiðar samgöngur til annarra borgarhluta. Hér fara saman kostir rótgróins íbúðahverfis, nálægð við náttúruna og öll helsta þjónusta sem gerir daglegt líf þægilegt.

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Breiðavík 24
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:11. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Breiðavík 24
Breiðavík 24
112 Reykjavík
86 m2
Fjölbýlishús
312
778 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 13
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 13
Vallengi 13
112 Reykjavík
91,5 m2
Fjölbýlishús
312
764 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Efstasund 98
Opið hús:16. nóv. kl 17:15-17:45
Skoða eignina Efstasund 98
Efstasund 98
104 Reykjavík
131,5 m2
Hæð
412
684 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 24 - Íb. 501
Bílastæði
Efsta hæð
Áshamar 24 - Íb. 501
221 Hafnarfjörður
140,9 m2
Fjölbýlishús
413
922 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin