Fasteignaleitin
Skráð 6. ágúst 2026

Brekkugerði 8

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
682.8 m2
12 Herb.
7 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
331.750.000 kr.
Brunabótamat
343.150.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Húsið er eftir

Módernisti og funksjónalisti.

Kemur fram í lýsingu eignarinnar.
Byggt 1972
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2033890
Landnúmer
107754
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar 1990
Raflagnir
Ný aðal-tafla og lagnir að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar 1990
Gluggar / Gler
Tvöfalt öryggisgler
Þak
Þakjárn lítur vel út
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Stórar svalir og verandir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Fasteignamarkaðurinn ehf. s. 570-4500 kynnir til sölu eitt allra glæsilegasta einbýlishús landsins, 682,8 fermetra einbýlishús við Brekkugerði 8 í Reykjavík, sem byggt var árið 1972 fyrir Vladimir Ashkenazy og teiknað af Gísla Halldórssyni og Bjarna Marteinssyni.  Eignin stendur á glæsilegri, ræktaðri, afgirtri og skjólsælli 1.727,0 fermetra lóð með stórum og skjólsælum veröndum, tyrfðum flötum, miklum fjölda bílastæða og fallegum trjágróðri.

Aðalinngangur hússins er úr vestri og aðkoma að húsinu þeim megin er öll hin glæsilegasta. 
Bakinngangur hússins er úr austri og eru þrjú bílastæði þeim megin á hellullagðri innkeyrslu. 

Eignin var algjörlega endurnýjuð hið innra og ytra árið 1990 af núverandi eiganda, en hann hélt þó fast í mikið af upprunalegu útliti og sögu hússins þrátt fyrir viðamiklar endurbætur á eigninni.

Húsið skiptist m.a. í mjög stórar og glæsilegar stofur, stórglæsilegt veislueldhús, stórt fjölskyldurými, tónleikasal með sérstakri hljóðvist, fjögur barnaherbergi, hjónasvítu, fjögur baðherbergi, þrjár gestasnyrtingar, líkamstræktarrými með gufubaði, 2ja herbergja aukaíbúð með sérinngangi og stóran bílskúr.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali, í síma 570-4500 eða á netfanginu gtj@fastmark.is


Nánari lýsing eignarinnar:
Gengið er inn í forstofu og þaðan í stórt og virðulegt hol með innbyggðum fataskápum og tekk klæddum veggjum. Gestasnyrting með glugga og innréttingu og herbergi með tveimur snyrtingum innaf. 
Glæsileg stór og björt stofa með gluggum í þrjár áttir, mjög mikilli lofthæð og fallegri viðarklæðningu í lofti. Stór og glæsileg borðstofa með útgengi á stóra og afar skjólsæla hellulagða verönd í "innigarði". Stórt og glæsilegt veislueldhús sem er fullbúið vönduðum tækjum, stórum háfi sem blæs út, mörgum kælum, innréttingum úr burstuðu stáli og sprautulökkuðum, miklir gluggar og útgengi á lóð. 
Á neðri palli hússins er stór tónleikasalur þar sem lofthæð er mikil, gryfja með föstum bekkjum, fastar innréttingar og í salnum var sérstaklega hugað að hljóðvist þegar húsið var byggt. Stórt fjölskylduherbergi með öðru nýlegu fullbúnu og glæsilegu eldhúsi innaf, forstofa með útgengi á framlóð og glæsilegt baðherbergi með líkamsræktarrými, stórri sturtu og gufubaði.
Á neðsta palli hússins, sem er gluggalaus en allur loftræstur, eru stórt opið rými, tvær eldtraustar geymslur og mjög stórt flísalagt þvottaherbergi með miklum innréttingum.
Á efsta palli hússins eru þrjú barnaherbergi, baðherbergi með glugga og mjög stórt hjónaherbergi sem bæði er með fataherbergi og baðherbergi innaf. 
Auk þess er á efsta palli hússins 3ja herbergja aukaíbúð sem bæði er innangengt í og er með sérinngangi af baklóð hússins. 

Bílskúrinn, sem er 57,0 fermetrar að stærð, er með nýrri bílskúrshurð með mótor, tveimur göngudyrum, gluggum, vaski, rennandi heitu og köldu vatni og með niðurfalli í gólfi. Ný aðal rafmagnstafla fyrir húsið er staðsett í bílskúr. 

Lóðin, sem er 1.727,0 fermetrar að stærð, öll afgirt með hárri stálgirðingu og stendur innst í botnlanga á mjög friðsælum og skjólsælum stað hefur alla tíð verið í mikilli rækt og er einstaklega falleg. Á framlóðinni er fjöldi bílastæða á stórri hellulagðri innkeyrslu með hitalögnum undir og rafstýrðu hliði, stór tyrfð flöt og mjög fallegur trjágróður.  Á miðri lóð til suðurs er stór hellulögð og skjólsæl verönd, en húsið umlykur þá verönd á þrjá vegu. Hellulögð stór verönd er útaf veislueldhúsi til norðurs og rúmgóð hellulögð innkeyrsla og viðarverönd eru á lóð til austurs. 

Húsið að utan var allt málað árið 2026 og lítur vel út. Nýlegt K-gler er í öllu húsinu og skipt var um alla gluggalista á sama tíma. Þak hússins var endurnýjað í heild sinni árið 1990 og allt unnið upp, grunnað og sprautulakkað fyrir fáeinum árum síðan og lítur mjög vel út. Þakrennur eru góðar og niðurföll hafa verið endurnýjuð nýlega. Mjög öflugt myndavéla- og öryggiskerfi er í og við húsið.
Eignin var í útleigu til sendiráðs um nokkurra ára skeið og þess vegna er mjög öflug öryggisgirðing með rafstýrðum hliðum umhverfis eignina. 

Sem fyrr segir var húsið allt endurnýjað hið innra árið 1990 og þá voru m.a. allar lagnir hússins endurnýjaðar, skipt um klóaklagnir, lagðar nýjar drenlagnir umhverfis húsið og settar hitalagnir í innkeyrslur.
Lagnagrind hússins er öll jarðtengd til að lágmarka rafmengun.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1972
57 m2
Fasteignanúmer
2033890
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.050.000 kr.

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langholtsvegur 50
Bílskúr
Efsta hæð
Langholtsvegur 50
104 Reykjavík
154.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
513
708 þ.kr./m2
109.700.000 kr.
Skoða eignina Barmahlíð 6
Skoða eignina Barmahlíð 6
Barmahlíð 6
105 Reykjavík
72.5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
826 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Langholtsvegur 143
Heitur pottur
IMG_0833.jpg
Langholtsvegur 143
104 Reykjavík
266.4 m2
Einbýlishús
624
597 þ.kr./m2
159.000.000 kr.
Skoða eignina Geitland 6
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Geitland 6
Geitland 6
108 Reykjavík
144.2 m2
Fjölbýlishús
513
797 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin