Skráð 6. mars 2026

Desjamýri 14C

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
202 m2
2 Baðherb.
Verð
127.900.000 kr.
Fermetraverð
633.168 kr./m2
Fasteignamat
74.400.000 kr.
Mynd af Svanþór Einarsson
Svanþór Einarsson
Byggt 2025
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2529831
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýir
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Á ekki við
Upphitun
Sameiginlegur hiti
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
8 - Í notkun
Kvöð / kvaðir
Lóðarleigusamningur, sjá skjal nr. 441-K-005125/2021. 4.881,7 fm. leigulóð til 50 ára frá 11.03.2021. Yfirlýsing, sjá skjal nr. 441-C-002077/2015. Samrunaskjal. Teigur landnr. 204905, fastanr. 233-1729 er sameinuð Lágafelli 205369. - Kvöð, sjá skjal nr. 411-S-004620/2011. Samningur um umsjón með skógræktarsvæðum í Mosfellsbæ. - Kvöð, sjá skjal nr. 411-U-03277. Afsal á heitavatnsréttindum til Hitaveitu Reykjavíkur. Eignaskiptayfirlýsing, sjá skal nr. 441-E-006029/2025. - Um eignarhlutföll o.fl. sjá eignarskiptayfirlýsingu - Hlutfall í mhl 11,64%. Hlutfall í lóð 11,64%. Hlutfall í húsi 11,64%. Mælir 1 hlutfall í hita 11,59%.
Kvöð um leiðréttingu á innskatti, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 50/1988, er á eigninni sem kaupandi yfirtekur.  Stendur í ca. kr. 8.963.961,-
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og vandað 202 m2 atvinnuhúsnæði á afgirtu svæði við Desjamýri 14 í Mosfellsbæ. Húsnæði merkt 0103. Eignin er skráð 202,0 m2, þar af atvinnurými á jarðhæð 150,0 m2 og milliloft 52,0 m2.
Eignin skiptist í rúmgóðan vinnusal með tveimur innkeyrsluhurðum og tveimur inngönguhurðum, salerni er innst í salnum. Efri hæðin skiptist í opið rými/skrifstofu og baðherbergi. 

Um er að ræða staðsteypt hús sem er einangrað og klætt að utan með álklæðningu.  Merktur sérafnotareitur á lóð við lóðarmörk fylgir eigninni ásamt sérafnotareitum/4 merktum bílastæðum fyrir framan innkeyrsludyr. Tvær innkeyrsluhurðar á hverju bili (4,5x4,0 og 3,0x3,0). Eignin afhendist samkvæmt skilalýsingu seljanda, fullbúin (byggingarstig B4).

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Verð kr. 127.900.000


Skilalýsing er eftirfarandi:
Utanhúss:

Útveggir: Húsið er staðsteypt, klætt að utan með liggjandi álbáru. Litur RAL-7016.
Þak: Þak er byggt upp með límtrésbitum og samlokueiningum frá Límtré-vírnet. Litur RAL 7011. Þakrennur, niðurföll og þakkantur frágenginn. Litur RAL 7011.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri, ál/tré gönguhurðar. Litur RAL 7011. Iðnaðarhurðir með rafmagnsopnun. Litur RAL 7011.
Lóð: Lóð er malbikuð. Búið er að merkja upp akstursleiðir og sérafnotareiti. Lóðin er afgirt og göngu og símahlið tengd og frágengin. Litur RAL 7016.
Lagnir: Snjóbræðsla er 2 metra út frá húsi allan hringinn.

Innanhúss:
Gólf: Gólf á jarðhæð, stiga og baðherbergi efri hæðar eru með epoxý á gólfi. parket er á skrifstofuhlutanum.
Innveggir: Veggir milli eignahluta eru steyptir. Veggir snyrtingar á neðri hæð eru hlaðnir með vikursteinum og pússaðir. Aðrir innveggir eru hefðbundnir gipsveggir. Allir innveggir eru sandsparslaðir og fullmálaðir.
Loft: Loft neðri hæðar er sandsparslað og fullmálað. Loft snyrtingar á neðri hæð er kerfisloft.
Rafmagn: Inntaksrými fyrir rafmagn og fjarskipti er í suðaustur horni byggingarinnar. Sér rafmagnsmælir er fyrir hvert bil. Sér rafmagnsmælir fyrir sameign. Allt rafmagn í húsinu fullfrágengið og úttekið samkvæmt teikningu. Ídráttarör frá rafmagnstöflu og að sérafnofareit.
Lagnir: Inntaksrými fyrir veitulagnir er í suðaustur horni byggingarinnar. Allar lagnir eru í ídráttarrörum frá inntaksrými að lagnagrindum. Gólfhiti er í botnplötu en annars eru ofnar í öllum lokuðum rýmum samkvæmt teikningum. Ræstivaskur fullfrágenginn. Salerni fullfrágengin. Handlaugar á snyrtingum efri og neðri hæðar fullfrágengnar.
Loftræsting: Loftræsting er tengd og fullfrágengin.

Annað:
Húsið er afhent og skráð á byggingarstig B4 og matsstigi 7, fullgerð bygging. Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu og timbri. Gera má ráð fyrir því að kaupandi þurfi að endurmála þegar byggingarefni hefur náð stöðugu ástandi. Kaupandi og seljandi fara yfir eignina í sameiningu við skil og sannreyna ástand hennar. Ef gallar eða vanefndir koma í ljós skal seljandi lagfæra við fyrsta tækifæri. Allar breytingar að ósk kaupenda geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunar. Kaupandi greiðir fyrir allar breytingar og viðbætur sem kaupandi og seljandi semja um. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af brunabótamati).

Áhvílandi er á eigninni vsk kvöð og miðast söluverð við að kaupandi yfirtaki kvöðina.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brúarfljót 3
Skoða eignina Brúarfljót 3
Brúarfljót 3
270 Mosfellsbær
254.4 m2
Atvinnuhúsn.
1
499 þ.kr./m2
127.000.000 kr.
Skoða eignina Bugðufljót 9
Skoða eignina Bugðufljót 9
Bugðufljót 9
270 Mosfellsbær
206.5 m2
Atvinnuhúsn.
1
581 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin