Domusnova, Haukur Páll Ægisson, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu, fjögurra herbergja parhús í fallegu hverfi sem staðsett er skammt frá Sunnulækjarskóla.
Um er að ræða timburhús klætt að utan með liggjandi hvítri báru og dökkri viðarklæðningu, húsið er byggt 2006. Samkvæmt fmr þá skiptist íbúðin í 137.5 m², bílskúr 39.6 m² eða samtals 177.1 m².
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, borðkrók, hol, baðherbergi, þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, bílskúr og geymslu/auka svefnherbergi.Nánari lýsingForstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofa er björt með gólfsíðum gluggum og útgengi út í bakgarð.
Eldhús er með fallegri innréttingu, með nægu skápaplássi. Bakarofn, auka ofn og uppþvottavél eru öll í vinnuhæð, einnig er spanhelluborð, háfur og upphengdir skápar.
Baðherbergi er með hvítum vaskaskáp og upphengdum skáp þar við hliðina, upphengdum speglaskáp baðkari og sturtu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi I er rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp.
Svefnherbergi III er rúmgott með fataskáp.
Þvottahús er rúmgott með upphengdum hillum, vinnuborði og tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara sem eru í vinnuhæð.
Bílskúr er með steyptu gólfi og geymslulofti.
Geymsla/auka herbergi er staðsett inn af bílskúr og nýtist í dag sem skrifstofa. Gluggar eru á rýminu.
Gólfefni, flísar eru á forstofu, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Parket er á alrými og herbergjum.
Garður/bifreiðastæði. Garðurinn er þökulagður með sólpalli að framanverðu og afgirtu svæði að hluta til að aftan, bifreiðarplan er malbikað.
Leikskólinn Hulduheimar og Sunnulækjarskjóli eru í göngufæri við eignina.
Virkilega falleg og skemmtileg eign sem vert er að skoða.Nánari upplýsingar veita:Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / hp@domusnova.isSkrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.