Fasteignaleitin
Opið hús:17. nóv. kl 16:30-17:00
Skráð 12. nóv. 2026

Bergþórugata 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
50.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
53.900.000 kr.
Fermetraverð
1.058.939 kr./m2
Brunabótamat
33.300.000 kr.
Byggt 1924
Jarðhæð
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
20081301
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Brynjólfur Snorrason lgfs., kynna til sölu fallega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sér inngangi í tvíbýli byggðu árið 1924 á eignarlóð að Bergþórugötu 1 í 101 Reykjavík. Eignin er skráð 50,9m2 að stærð og samanstendur af anddyri, baðherbergi, svefnherbergi og eldhúsi og stofu í opnu rými. Frábær fjárfesting hvort sem er til útleigu eða búsetu í miðbæ Reykjavíkur. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is.

Nánari lýsing.

Anddyri: Komið inn um sér inngang frá norðurhlið húseignar. Í anddyri er fatahengi og á gólfi eru flísar.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, smekkleg innrétting við vask, haganlega fyrirkominn sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél og gluggi með opnanlegu fagi. 
Eldhús: Í opnu rými með stofu, falleg hvít innrétting með ágætu skápaplássi, fín borðaðstaða við bogadreginn vegg með fallegri gluggasetningu. Á gólfi er parket.
Stofa: Gluggar til suðurs og parket á gólfi. 
Herbergi: Inn af stofu, gluggi til austurs og parket á gólfi. 

Falleg og vel skipulögð íbúð með sérinngangi í miðbæ Reykjavíkur. Sjón er sögu ríkari! 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grettisgata 98
Efsta hæð
Opið hús:12. nóv. kl 16:45-17:45
Skoða eignina Grettisgata 98
Grettisgata 98
105 Reykjavík
44,3 m2
Fjölbýlishús
211
1465 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 103
Á einni hæð
Opið hús:17. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hringbraut 103
Hringbraut 103
101 Reykjavík
51,5 m2
Fjölbýlishús
211
969 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 3 - íbúð 306 NÝTT INN
Efsta hæð
Opið hús:14. nóv. kl 14:00-14:30
Grásteinsmýri 3 - íbúð 306 NÝTT INN
225 Garðabær
64,7 m2
Fjölbýlishús
211
1049 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Skólavörðustígur 6B
2.jpg
Skólavörðustígur 6B
101 Reykjavík
73,5 m2
Fjölbýlishús
311
1019 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin