101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Vel staðsett fjölskylduhús á Völlunum Skólar, leikskólar, íþróttasvæði og verslun í göngufæri.
Skipulag eignar:
Eignin samanstendur af: Forstofu, gestasalerni, alrými/ stofu/borðstofu, eldhúsi, þvottahús, fjórum svefnherbergjum og baðherbergi. Útgengi er frá borðstofu/ stofu að garði. Innangengt er í bílskúr frá þvottahúsi.
Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð gólf og fataskápur, hurð lokar forstofu af við alrými.
Gestasalerni inn af forstofu, flísalagt gólf og veggir, baðinnrétting með skáp og handlaug, spegill fyrir ofan innréttingu og upphengt salerni. Flíslögð sturta og gluggi er á baðherbergi.
Komið er inn af forstofu í opið alrými einkar rúmgott, hátt til lofts, stórir gluggar og tveir þakgluggar sem gefa birtu og karakter í rými.
Stofa/borðstofa er hluti af alrými, parketlagt gólf, stórir gluggar vísa í suður og vestur með útgangi að palli og að garði hússins.
Eldhús inn af opnu rými við stofu. Eikarinnrétting efri skápar og neðri skápar hvítir og dökk borðplata. Ofn í vinnuhæð ásamt örbylgjuofni, helluborð og vifta. Góður borðkrókur með stórum gluggum.
Þvottahús mjög rúmgott er á móts við eldhús, flísalagt gólf, þvottavél og þurrkari í vinnsluhæð og góðar hvítar innréttingar. inngangur er í þvottahús frá bílaplani og innangengt er úr þvottahúsi í bílskúr.
Herbergi, þrjú á gangi við stofu, parketlögð og með fataskápum. Hjónaherbergi parketlagt og með góðum fataskápum
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, baðkar og innangent í sér rúmgóða sturtu. Rúmgóðar baðinnréttingar. upphengt salerni og útgengi út í garð að heitum potti.
Bílskúr skráður samkvæmt fasteignayfirliti 49 fm. innréttingar við vegg og útgengi bakatil út á pall.
Köld útigeymsla er vestan megin við húsið.
Bílaplan er stórt, hellulagt og með hitalögn.
Garður er gróinn, snýr í suðvestur og er með timburpöllum, heitum potti, útiskýli og innangengt í bílskúr frá pöllum að baka til.
Allar upplýsingar veita: Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is og Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is
Bókið skoðun á kristin@101.is eða í síma 820-8101
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.