Fasteignaleitin
Skráð 14. júní 2026

Týsnes 6 eign 105

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Norðurland/Akureyri-603
150 m2
Verð
70.000.000 kr.
Fermetraverð
466.667 kr./m2
Fasteignamat
5.550.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2539980
Landnúmer
228751
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
2026
Raflagnir
2026
Frárennslislagnir
2026
Gluggar / Gler
2026
Þak
2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
7,5
Upphitun
Hitaveita - gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
sjá nánar í eignaskiptasamningi
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Týsnes 6 eignarhluti 105 – Nýbygging


 ** Möguleiki er að fá eignina leigða **

Vandað geymsluhúsnæði með góðri lofthæð í nýbyggingu við Týsnes 6 – stærð 150,0 m²
Eignin afhendist fullbúin að utan og tilbúin undir málningu að innan. Snyrting verður í uppsett.
Eignin er rúmmir 12 metra á dýpt og um 11,8 metrar að breidd.
Góð aðkoma - stór malbikuð lóð.


Áætlaður afhendingartími eignar er september / október 2026

Frekari upplýsingar veitir Björn Davíðsson s. 466 1600 / 862 0440 eða bubbi@kaupa.is. 


Nánari lýsing:
Sökklar
eru úr forsteyptum einingum, einangraðir að utan og ná um um 10 cm upp fyrir gólfplötu.  
Plata er steypt og vélslípuð. Gólfhiti er steyptur í plötu í hverjum eignarhluta samkv. teikningum.
Burðarvirki hússins er timburvirki úr límtré. 
Útveggir eru klæddir með 120 mm steinullaryleiningum sem festast á límtréið. Litur Ral 8012
Milliveggir á milli eignarhluta eru forsteyptir, ómeðhöndlaðir.    
Þak er klætt með 150 mm steinullaryleiningum. Litur Ral 9005. Þakrennur ásamt þakniðurföllum verður fullfrágengið. Snjógildrur verða settar á báðar langhliðar samkv. teikningu.
Gluggar og hurðir koma frá Hýsi ehf og eru úr plasti í litnum ral 7016. Gler í gluggum er með sólarvörn. 
Iðnaðarhurðir koma frá Hýsi ehf, 420 x 420 cm að stærð með rafmótor. Litur Ral 7016. Hurðir opnast í flútti við þakhalla.
Lóð: Umhverfis húsið verður plan malbikað samkvæmt teikningu hönnuða um 6.500m ². Snjóbræðsla verður lögð meðfram langhliðum hússins samkvæmt teikningum, um 2 metrar og tengd við affall af húsi.
Heitt og kalt vatn verður tengt inn í hvern hluta samkvæmt teikningum en kaupendur sjá sjálfir um allar neysluvatnslagnir fyrir sig að lögnum að snyrtingu undanskildri. Gólfniðurföll verða fyrir innan hverja innkeyrsluhurð. Pípulagnir verða samkvæmt teikningum lagnahönnuðar. Stútar fyrir frárennsli eru lagðir uppúr plötu samkvæmt teikningu.
Olíuskilju verður komið fyrir og tengd samkvæmt teikningu hönnuða.
Sér hitaveitumælir verður fyrir hvert rými og staðsettur í tæknirými.
Brunaviðvörunarkerfi verður sett upp í öllum rýmum skv. teikningum og tengt í stöð í tæknirými. Samningur verður gerður við söluaðila kerfis sem væntanlegt húsfélag mun svo yfirtaka. Brunaslöngum verður komið fyrir í öllum eignarhlutum.
Rafmagn: Ein 200A heimtaug verður lögð inn í tæknirými sem tengd er við aðaltöflu hússins og þaðan verður svo dreift í hvert bil á sér mæli 3fasa. Greinatöflu verður komið fyrir í hverjum eignarhluta ásamt vinnulýsingu. Þremur ídráttarrörum verður komið fyrir úr tæknirými og í hvern eignarhluta. Eitt fyrir rafmagn, eitt fyrir ljósleiðara og eitt auka rör
Ídráttarrör verða lögð úr tæknirými að lóðamörkum á langhliðum fyrir hugsanlega lýsingu/hleðslustöðvar
Einn mælir er fyrir sameignlega notkun og skiptist eftir hlutfallstölu.
Útiljós verða fyrir ofan hverja innkeyrsluhurð tengd við sólarklukku í töflu.
Skv. eignaskiptasamningi hafa allar eignir sérnotafleti 8,0 m út frá húsi og afmarkast um hugsaða miðlínu milli eignar, sjá nánar í eignaskiptasamningi. 

Á eigninni hvílir vsk-kvöð sem kaupandi yfirtekur. Auglýst verð er tilgreint án vsk-kvaðar.  

Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignar, 0,3% af brunabótamati eignar þegar það verður lagt á.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/04/20265.550.000 kr.53.250.000 kr.150 m2355.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (3)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fellsmúli 14
Opið hús:18. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Fellsmúli 14
Fellsmúli 14
108 Reykjavík
68.4 m2
Fjölbýlishús
211
846 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Gráhella 3
Skoða eignina Gráhella 3
Gráhella 3
800 Selfoss
110.6 m2
Raðhús
413
542 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Týsnes 6 eign 104
Týsnes 6 eign 104
603 Akureyri
300 m2
Atvinnuhúsn.
467 þ.kr./m2
140.000.000 kr.
Skoða eignina Brekkubyggð 69
Opið hús:15. júní kl 18:00-18:30
Skoða eignina Brekkubyggð 69
Brekkubyggð 69
210 Garðabær
78.1 m2
Fjölbýlishús
312
933 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin