Fasteignaleitin
Skráð 14. júní 2023
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Ciudad Quesada

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
170 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
55.400.000 kr.
Fermetraverð
325.882 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
930230222
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Stórar verandir og svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS - FRÁBÆR STAÐSETNING* – *GOTT VERÐ*

Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús  með stórum lokuðum garði og einkasundlaug í Ciudad Quesada, fallegum spænskum bæ, um 45 mín akstur suður af Alicante. Þrjú til fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa, borðstofa og vel hannað eldhús. Stórt rými í kjallara sem hægt er að nýta sem tómstundarrými, vinnuaðstöðu, sjónvarpsherbergi og/eða gestaherbergi. Þvottahús og geymsla. Verönd  út frá stofu og einkasundlaug. Stórar svalir út frá svefnherbergi á efri hæð.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is

Nánari lýsing:

Aðalhæð: Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými . Svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi, baðherbergi. Útgengi út á stórar svalir.
Kjallari: Stórt opið rými sem hægt er að nýta sem tómstundarherbergi, sjónvarpsstofu, vinnurými og gestaaðstöðu. Baðherbergi og þvottahús.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 

Stæði fyrir bíl í lokuðum garði.

Stór garður með möguleika á einkasundlaug, sem tengist vel góðri verönd út frá stofu. Þar er gott pláss  t.d. til að borða úti eða njóta sólarinnar við sundlaugarbakkann.

Verslanir og veitingastaðir í göngufæri.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15-20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Ciudad Quesada er skemmtilegur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi bæjarlífi,  Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. 

Verð frá 369.900 evrum  + kostn. (ISK 55.400.000 + kostn. miðað við gengi 1Evra=150 ISK.)

Kostnaður í evrum vegna extra:
Sundlaug 6x3m 17.500
Sundlaug 7x3m 19.900
Fullinnréttaður kjallari 39.900
Auka baðherbergi í kjallara 6.900

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, air con, einkasundlaug, kjallari,
Svæði: Costa Blanca, Ciudad Quesada,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Herrada
SPÁNAREIGNIR - La Herrada
Spánn - Costa Blanca
171 m2
Einbýlishús
43
327 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
Spánn - Costa Blanca
116 m2
Einbýlishús
423
464 þ.kr./m2
53.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
141 m2
Parhús
423
406 þ.kr./m2
57.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR San Pedro del Pinatar
SPÁNAREIGNIR San Pedro del Pinatar
Spánn - Costa Blanca
163 m2
Einbýlishús
333
337 þ.kr./m2
55.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache