Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Fuglavík 35 C, 230 ReykjanesbærNýlegt iðnaðarhúsnæði við Fuglavík með góðri lofthæð, stórri innkeyrsluhurð og sérinngangi. Húsnæðið er opið og óinnréttað, með steyptu gólfi, hitablásara og sér inntaki og mælum fyrir vatn og rafmagn.
Eignin er laus við kaupsamning.Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 80,5 m², merkt 01-0103, fastanúmer F2540661, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindum.✅ Sér inntak og sér mælir fyrir vatn og rafmagn.
✅ Innkeyrsluhurð 4,0 m á breidd og 4,2 m á hæð.
✅ Góð lofthæð, vegghæð 5,095 m og hæð upp í mæni 7,54 m.
✅ Hitablásari með stýrikerfi í hverju bili.
✅ Gólfniðurfall innan við hverja innkeyrsluhurð.
✅ Olíuskilja tengd við frárennsli.
✅ Malbikuð lóð og bílastæði fyrir framan bil.
Lýsing eignar:Iðnaðarbil með steyptu gólfi, stórri innkeyrsluhurð og sér gönguhurð. Innkeyrsluhurðin er 4,0 m á breidd og 4,2 m á hæð og er með rafknúnum hurðaopnara og fjarstýringu. Vegghæð er 5,095 m og hæð upp í mæni 7,54 m. Eignin er án millilofts.
Sér inntak og mælir eru fyrir vatn og rafmagn. Rafmagn er frágengið samkvæmt skilalýsingu með greinataflu, þriggja fasa tengli og LED-lýsingu. Hitablásari með stýrikerfi sér um upphitun rýmisins.
Gólfniðurfall er fyrir innan innkeyrsluhurð og olíuskilja er tengd við frárennsli. Skólp- og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi. Eignin er án uppsetts salernis.
Byggingarlýsing:Húsið er yleiningahús með límtrésburðarvirki. Undirstöður og botnplata eru staðsteyptar og gólfplata og sökkull einangruð með 100 mm frauðplasti. Þak er klætt 187 mm steinullareiningum og útveggir 120 mm steinullareiningum. Skilveggir milli iðnaðarbilanna eru úr 100 mm steinullareiningum. Þakhalli er 12°.
Gluggar og gönguhurðir eru úr áli. Vegg- og þakeiningar eru dökkgráar að utan, RAL 7016, og ljósar að innan, RAL 9010.
Lóð, aðkoma og bílastæði:Lóðin er malbikuð og fyrir framan iðnaðarbilin er steypt plan. Snjóbræðslulögn er í steypta planinu en hún skilast ótengd. Bílastæði eru á sameiginlegri lóð fyrir framan iðnaðarbilin og við suðurenda lóðarinnar.
Eignin stendur á leigulóð, landnúmer L206237. Lóðin er skráð 2.927 m² og samkvæmt lóðarleigusamningi er leigutími til 31. júlí 2075.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00