Fasteignaleitin
Skráð 7. nóv. 2025

Víðiholt 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
107.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
836.279 kr./m2
Fasteignamat
74.050.000 kr.
Brunabótamat
60.850.000 kr.
Mynd af Andri Freyr Halldórsson
Andri Freyr Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2533610
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
07
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sérafnota reitur.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Andri Freyr Halldórsson lgfs. & LIND Fasteignasala & kynna til sölu:
Nýleg og vandaða íbúð á besta stað á Álftanesi – Víðiholt 3.
Fallegt og vel skipulagt fjölbýlishús í nálægð við gylltu fjöruna á Álftanesi – sannkölluð paradís fyrir náttúruunnendur.

***EIGNIN ER SELD, ER MEÐ KAUPENDUR Á SKRÁ SEM ERU AÐ LEITA AÐ 4 HERBERJA SAMBÆRILEGU HÚSNÆÐI. HAFÐU SAMNBAND Í SÍMA: 7626162***


Skráð stærð eignar skv. FMR er 107.5 fm. Íbúðin er merkt 01-07. 
*Fasteignamat skv. fmr fyrir árið 2026 er 83.550.000kr.*


*Jarðhæð.
*Frábær staðsetning – sveit í borg
*Eldhús með eyju.
*Sérinngangur


Eignin skiptist í:
Forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og geymsla í sameign.

Nánari lýsing eignar:
Anddyri: með harðparket á gólfi og fataslá. 
Eldhús: með sérsmíðari innréttingu frá Voké-III, yfirborð úr slitsterku harðplasti frá Kronospan/Egger, borðplata úr HPL. Harðparket á gólfi. 
- Innbyggður bakarofn og spanhelluborð frá Electrolux. Blöndunartæki Hansgrohe Vernis.
Stofa & borðstofa: tengjast í bjart og fallegt rými með harðparketi á gólfi.
-Útgengt er úr stofu út á suður verönd. 
Baðherbergi: með flísum á hluta veggja, Walk-in sturta með glerþili, innrétting frá Voké-III, tengi fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara.
Hjónaherbergi: með harðparketi á gólfi og sérsmíðaðir frá Voké-III, ná upp í loft, litur samkvæmt hönnunarþema.
Svefnherbergi 1: með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2: með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Geymsla: 5.0 fm, staðsett í sameign. 
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla á jarðhæðinni og dýrahald er leyfilegt.

Umhverfið:
Víðiholt er vel staðsett miðsvæðis á Álftanesi – svæði sem einkennist af grænum svæðum og nálægð við sjóinn.
Göngustígar tengja byggðina við nærliggjandi svæði, skóla, leikskóla, íþrótta- og útivistarsvæði.
Lögð er áhersla á öruggt, gönguvant og vistlegt hverfi með góðu skjóli og fallegum sameiginlegum svæðum.
Sveit í borg – aðeins steinsnar frá gylltu fjörunni, þar sem náttúra og borgarlíf mætast á einstakan hátt.

Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali  / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. 
Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma & SÝN. 


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Helstu upplýsingar:
Víðiholt 3 er þriggja hæða fjölbýlishús með lyftu.
Í húsinu eru 25 vel skipulagðar 3–4 herbergja íbúðir þar sem leitast er við að nýta hvern fermetra til fulls.
Allar íbúðir hafa sérinngang — íbúðir á 1. hæð inn af lóð, en íbúðir á 2. og 3. hæð um utanáliggjandi svalaganga.
Lyftuhús er staðsett í miðju hússins, með opnum stigum sitt hvoru megin.
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með veðurþolinni og viðhaldslítilli klæðningu.
Dæmi um íbúð:
Íbúð 107 – fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð
Stærð: nánar samkvæmt teikningu
9,3 fm verönd
5 fm geymsla
Vefsíða verkefnis: vidiholt.is

Kostir verkefnisins:
Nýtt og glæsilegt fjölbýlishús á vinsælum stað á Álftanesi
Vandaðar innréttingar frá Voké-III
Allar íbúðir með sérinngang og svölum eða sérafnotareit
Lyfta í húsinu
Stutt í náttúru, þjónustu, skóla og leiksvæði
Góð nýting rýma og vönduð hönnun
Frábær staðsetning – sveit í borg

Almennt um skilalýsingu:
Íbúðum er skilað fullbúnum með sérsmíðuðum innréttingum frá Voké-III, samkvæmt skilalýsingu.
Gólfefni: flísalagt anddyri og baðherbergi með gæðaflísum í ljósgráum lit (Limestone frá Ebson, 30x60 cm).
Önnur rými afhent án gólfefna.
Eldhús: sérsmíðuð innrétting frá Voké-III, yfirborð úr slitsterku harðplasti frá Kronospan/Egger, borðplata úr HPL.
Eldhústæki: innbyggður ofn og spanhelluborð frá Electrolux eða sambærilegt.
Eldhúsvaskur: Ukinox 50x50 cm, blöndunartæki Hansgrohe Vernis.
Baðherbergi: sturta með gleri, innrétting frá Voké-III, tengi fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara.
Fataskápar: sérsmíðaðir frá Voké-III, ná upp í loft, litur samkvæmt hönnunarþema.
Útveggir: staðsteyptir, einangraðir að utan með 125 mm einangrun, ál-undirkerfi og báruálklæðning.
Gluggar og útihurðir: ál-timbur frá Rationel, tvöfalt k-gler.
Lóð: frágangur í samræmi við hönnun landslagsarkitekts, hellulagðir sérafnotareitir, graslóð og hjólagrindur.
Snjóbræðsla í bílastæðum hreyfihamlaðra og aðkomuleiðum.

Hönnun og ráðgjafar:
Arkitektar og aðalhönnuðir: Arkís arkitektar
Verkfræðihönnun: Verkfræðistofa Reykjavíkur
Landslagshönnun: Landslag
Verktaki: JÁVERK
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/03/202571.350.000 kr.87.900.000 kr.107.5 m2817.674 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Geislaskarð 2
3D Sýn
Skoða eignina Geislaskarð 2
Geislaskarð 2
221 Hafnarfjörður
108 m2
Fjölbýlishús
413
727 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin