Miklaborg kynnir: Brúarfljót 2 í Mosfellsbæ – 190,2 fm iðnaðar- og atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum með góðri lofthæð, stórri innkeyrsluhurð og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum. Húsið er forsteypt og byggt árið 2020. Eignin getur verið laus við kaupsamning.
Eignin skiptist í 127,5 fm neðri hæð og 62,7 fm efri hæð.
Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon lgfs. í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is
Nánari lýsing
Neðri hæð: Rúmgott og opið iðnaðarrými með mikilli lofthæð að hluta, stórri innkeyrsluhurð með gluggum og sér inngönguhurð. Málað gólf með niðurfalli, vinnuvaskur og salernisaðstaða með upphengdu salerni og handlaug í innréttingu. Stigi liggur upp á efri hæð.
Efri hæð: Bjart og rúmgott alrými með parketlögðu gólfi og sýnilegum burðarbitum úr timbri. Eldhúsaðstaða með viðarlitaðri innréttingu, bakaraofni, háfi og vaski. Baðherbergi með sturtuklefa, salerni og handlaug í innréttingu.
Efri hæðin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars sem skrifstofu-, starfsmanna- eða vinnuaðstöðu.
Malbikað athafnasvæði er framan við húsið. Eignin getur verið laus við kaupsamning.
Eignin er í nýlegu atvinnuhverfi við Brúarfljót í Mosfellsbæ. Í næsta nágrenni eru iðnaðar- og lagerhús af ýmsum stærðum og stutt er út á Vesturlandsveg, bæði til Reykjavíkur og norður úr bænum. Malbikuð aðkoma er að bilinu og hægt að aka beint að innkeyrsluhurð, sem auðveldar móttöku og afhendingu á vörum.
Hentugt atvinnuhúsnæði fyrir ýmiss konar iðnaðar-, lager- og þjónustustarfsemi með góðri aðstöðu á efri hæð, eftir því sem heimiluð notkun leyfir.
Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon lgfs. í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 12/06/2025 | 67.650.000 kr. | 310.800.000 kr. | 446.8 m2 | 695.613 kr. | Nei |
| 11/09/2023 | 53.750.000 kr. | 52.900.000 kr. | 190.2 m2 | 278.128 kr. | Já |
| 10/09/2020 | 31.650.000 kr. | 37.000.000 kr. | 190.2 m2 | 194.532 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
270 | 190,2 | 91,9 | ||
270 | 108 | 58,9 | ||
105 | 178,8 | Tilboð | ||
220 | 184,3 | 109,8 | ||
113 | 775,3 | Tilboð | ||
270 | 178,2 | 139,9 |