Fasteignasalan Hvammur 466-1600
Kjarnagata 51 íbúð 205 - Björt 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli í Hagahverfi með sér stæði í bílageymslu - Stærð 62,0 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Eigninni tilheyrir sér stæði í bílageymslu og sér geymsla í kjallara.
Forstofa er með parketi á gólfi og góðum tvöföldum fataskáp.
Eldhús er með tvílitri innréttingu með flísaþiljum milli skápa, keramikhelluborði, bakaraofni og stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með parketi á gólfi. Þar er rennihurð út á steyptar austur svalir, 6,9 m² að stærð.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og í sturtu. Góð tvílit innrétting er með handlaug og stæði fyrir þvottavél í vinnuhæð. Sturta og vegghengt wc.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og ljósum fjórföldum fataskáp.
Sér geymsla í kjallara er með lökkuðu gólfi, skráð 3,5 m² að stærð.
Annað- Ljóst vínylparket er á öllum gólfum íbúðar nema baðherbergi, þar eru flísar.
- Gólfhiti er í íbúðinni.
- Hljóðdempandi plötur eru í loftum allra rýma, að baðherbergi undanskildu.
- Loftskiptakerfi
- Mynddyrasími.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.