Eignir Kjarnafæði Norðlenska við Lón (Lónsá) í Hörgársveit. Um er að ræða fasteignir og lóðir sem liggja saman og tilheyrðu áður Kötvinnslu B.Jensen, þrjár fasteignir á þremur lóðum. Stefnt er að því að selja allari eignirnar saman - óskað er eftir tilboðum í eignirnar. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Sigurðsson í siggi@kaupa.is og 862 1013
- Dverghóll - 7.322 m² eignarlóð sem stendur efst eignanna þriggja og skráð sem eyðijörð og á því stendur óskráð timburmannvirki sem notað hefur verið sem hesthús.
- Lón - atvinnuhúsnæði, sem er að að stórum hluta nýbygging á tveimur hæðum og hönnuð fyrir sláturhús og kjötvinnslu. Skv. Fasteignaskrá HMS er heildarstærð eignarinnar 1.917,7 m² Samkvæmt byggingarlýsingu eru útveggir steyptir og óeinangraðir að stærstum hluta. Þak er byggt upp með stálbitum og ofan á þeim hvíla steinullar einingar. Húsið er að mestu óeinangrað vegna þeirrar starfsemi sem þar átti að fara fram og flokkað sem landbúnaðarbygging. Á eigninni eru innkeyrsluhurðar og malbikuð bílablön bæði fyrir ofan og neðan húsið. Stærstur hlutu hússins er gluggalaust rými en einnig er gert ráð fyrrir skrifstofum og verslun. Lóðin er eignarlóð 7,715 m² að stærð.
- Lón - íbúðarhúsnæði. 179,3 m² 6 herbergja einbýlishús á einni hæð á eignarlóð sem skráð er 1.380 m² að stærð. Eignin er skv. fasteignaskrá HMS hlaðin og með skráð byggingarár 1974. Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, borðstofu, fimm svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Eignin var töluvert endurnýjuð í kringum árið 2000 og eldhús var endurnýjað kringum 2015 og þar er gólfhiti. Þar eru flísar á gólfi og hvít sprautulökkuð innrétting með hvítum sandsteini á bekkjum. Stofa og borðstofa liggja saman. Þar er ljóst parket á gólfi, gluggar til þriggja átta, innfelld lýsing og loft eru tekin upp. Tvöföld hurð er úr stofu út á verönd. Svefnherbergin eru fimm, öll með ljósu parketi á gólfi og í hjónaherbergi er stór hvítur sprautulakkaður fataskápur. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, baðkar, sturta og opnanlegur gluggi. Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu. Í forstofu eru flísar á gólfi og skápar. Raflagnir verið endurnýjaðar í húsinu og tafla endurnýjuð. Með austur-, suður- og vesturhlið hússins eru stórar timbur verandir. Steyptur og flísalagður pottur er vestan við hús en hann þarfnast lagfæringar.
Eignirnar standa á landmerkjum Akureyrar og Hörgársveitar. Dverghóll er skráður á Akureyri en báðar Lóns eignirnar í Hörgársveit.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
2,097 m2
Sérinng.
Fasteignanúmer
2157795
Landnúmer
179405
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Eignirnar þarfnast uppbyggingar og endurbóta. Áhugasömum er ráðlagt að skoða eignirnar vel og nýta sér aðstoð fagmanna við skoðun.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Eignir Kjarnafæði Norðlenska við Lón (Lónsá) í Hörgársveit. Um er að ræða fasteignir og lóðir sem liggja saman og tilheyrðu áður Kötvinnslu B.Jensen, þrjár fasteignir á þremur lóðum. Stefnt er að því að selja allari eignirnar saman - óskað er eftir tilboðum í eignirnar. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Sigurðsson í siggi@kaupa.is og 862 1013
- Dverghóll - 7.322 m² eignarlóð sem stendur efst eignanna þriggja og skráð sem eyðijörð og á því stendur óskráð timburmannvirki sem notað hefur verið sem hesthús.
- Lón - atvinnuhúsnæði, sem er að að stórum hluta nýbygging á tveimur hæðum og hönnuð fyrir sláturhús og kjötvinnslu. Skv. Fasteignaskrá HMS er heildarstærð eignarinnar 1.917,7 m² Samkvæmt byggingarlýsingu eru útveggir steyptir og óeinangraðir að stærstum hluta. Þak er byggt upp með stálbitum og ofan á þeim hvíla steinullar einingar. Húsið er að mestu óeinangrað vegna þeirrar starfsemi sem þar átti að fara fram og flokkað sem landbúnaðarbygging. Á eigninni eru innkeyrsluhurðar og malbikuð bílablön bæði fyrir ofan og neðan húsið. Stærstur hlutu hússins er gluggalaust rými en einnig er gert ráð fyrrir skrifstofum og verslun. Lóðin er eignarlóð 7,715 m² að stærð.
- Lón - íbúðarhúsnæði. 179,3 m² 6 herbergja einbýlishús á einni hæð á eignarlóð sem skráð er 1.380 m² að stærð. Eignin er skv. fasteignaskrá HMS hlaðin og með skráð byggingarár 1974. Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, borðstofu, fimm svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Eignin var töluvert endurnýjuð í kringum árið 2000 og eldhús var endurnýjað kringum 2015 og þar er gólfhiti. Þar eru flísar á gólfi og hvít sprautulökkuð innrétting með hvítum sandsteini á bekkjum. Stofa og borðstofa liggja saman. Þar er ljóst parket á gólfi, gluggar til þriggja átta, innfelld lýsing og loft eru tekin upp. Tvöföld hurð er úr stofu út á verönd. Svefnherbergin eru fimm, öll með ljósu parketi á gólfi og í hjónaherbergi er stór hvítur sprautulakkaður fataskápur. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, baðkar, sturta og opnanlegur gluggi. Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu. Í forstofu eru flísar á gólfi og skápar. Raflagnir verið endurnýjaðar í húsinu og tafla endurnýjuð. Með austur-, suður- og vesturhlið hússins eru stórar timbur verandir. Steyptur og flísalagður pottur er vestan við hús en hann þarfnast lagfæringar.
Eignirnar standa á landmerkjum Akureyrar og Hörgársveitar. Dverghóll er skráður á Akureyri en báðar Lóns eignirnar í Hörgársveit.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.