Lögeign kynnir eignina Garðarsbraut 81, 640 Húsavík, nánar tiltekið eign merkt 02-01.
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á annari hæð í fjöleignarhúsi, íbúðin er 82,5 M² og skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Úr stofu er útgengi út á svalir með flottu útsýni yfir flóann og kinnarfjöllin.
Nánari lýsing: Forstofa, Eldhús, Stofa, Baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Forstofa: komið er inn í opna forstofu með dúk á gólfi, úr forstofu er bæði gengið inn í eldhús, stofu og á herbergisgang.
Eldhús: er með eldri viðarlitaðri innréttingu með bæði neðri og efri skápum, svört bekkplata og tekið úr innréttingu fyrir uppþvottavél, Framan við innréttingu er borðkrókur.
Stofa: nýtist bæði sem borðstofa og sjónvarpsstofa, útgengi er út á svalir með flottu útsýni.
Baðherbergi: er með hvítri vaskainnréttingu og speglaskáp, sturtubaðkar, Wc og tengi fyrir þvottavél er á baðherberginu.
Tvö svefnherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott og með stórum fataskáp og eitt aðeins minna herbergi með fataskáp.
Gólfefni: Dúkur á eldhúsi, forstofu, stofu og baðherbergi. Bæði svefnherbergin eru parketlögð.
Geymsla: 4,4 M² sér geymsla fylgir eigninni sem er staðsett í kjallaranum.
Annað:
- Skipt var um þakjárn og sett ný einangrun í þak árið 2022
- Húsið var málað og farið í múrviðgerðir að utan sumarið 2022
- Stórt bílaplan með bundnu slitlagi er fyrir framan húsið og aðgengi gott.
- Stutt er í góðan leikvöll og matvörubúð er handan götunnar
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is eða Hinrik Marel Jónasson Lund lgf, í síma 8350070 eða netfanginu Hinrik@logeign.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á