Til leigu 242 m² verslunarrými á 1. hæð við Holtagarða í Reykjavík. Húsnæðið er nýuppgert. Afhending maí 2023.
Stór gluggafrontur, rýmið er afhent tilbúið til innréttinga með nýmáluðum sléttum veggjum og loftum. Grunnlýsing er til staðar.
Nú stendur yfir endurnýjun við Holtagarða. Aðkoma viðskiptavina og gangar fá algjöra yfirhalningu. Settir verða nokkrir nýir inngangar á húsið til að bæta flæði og tengja það betur við bílastæði. Rúllustigi milli hæða verður fjarlægður ásamt því að lyftum og stiga verður bætt við.
Í Holtagörðum er að finna fjölbreytta verslun og þjónustu. Eftir breytingar verða í húsinu, til viðbótar við ofangreindar verslanir, Bakarameistarinn og Dýraríkið á fyrstu hæð auk Fakó, Reebok Fitness og Dorma á annarri hæð.