ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Fagrahlíð 3, 221 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-02, birt stærð 82.3 fm. Þryggja herbergja
íbúð á jarðhæð ásamt sólpalli. Vel staðsett íbúð i Setberginu. Gott skipulag. Húseignin er steinsteypt á þremur hæðum með níu íbúðum.
Íbúðin getur verið laus fyrir 15.mars 2023.
Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma
560-5501, tölvupóstur
pall@allt.is.Eignin skiptist í flísalagða forstofu með náttúruflísum ásamt fatahengi, komið inn í stofu og borðstofu með parketi og náttúruflísum. Eldhús aflokað með agætri innréttingu. Inn af eldhúsi er geymsla. Baðherbergi með baðkari og sturtuhengi. Góðar hyrslur og stór vaskur. Tvö svefnherbergi með skápum. Gott húsfélag. Sameign snyrtileg. Sameiginlegur geymsluskúr á lóð. Íbúðin hefur sérafmakaða lóðarspildu framan við stofuglugga saman ber uppdrátt í eignaskiptayfirlýsingu. Seljandi hefur búið í eigninni frá upphafi.
Nánari lýsing eignar:Forstofa með flísum og fatahengi.
Eldhús: Ágæt viðarinnrétting, ásamt aðstöðu fyrir uppvöskunarvél, eldavél og háfur. Innrétting er vel með farin.
Geymsla og þvottahús: geymsla er innan íbúðar, inn af eldhúsi með aðstöðu fyrir þvottavél. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Stofa og borðstofa: Er rúmgóð og björt. Gengið út á sólpall.
Baðherbergi með baðkari og sturtuhengi, flísar á gólfi og hluta veggja. Góð innrétting og hyrslukápur.
Svefnherbergi eru tvö og bæði með skáp.
Umhverfi: Sér aflokaður sólpallur. Gott bílaplan, lóð tyrfð. Snyrtileg og vel við haldin eign.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62, 240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.500.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.