Skráð 3. feb. 2026

Kirkjugata 13

EinbýlishúsNorðurland/Hofsós-565
245.5 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.000.000 kr.
Fermetraverð
240.326 kr./m2
Fasteignamat
43.200.000 kr.
Brunabótamat
109.500.000 kr.
Byggt 1975
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2143649
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Síðan húsið var byggt
Raflagnir
Síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
Síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
Móða á milli glerja / einn gluggi orðin lélegur
Þak
Þakjárn og pappi endurnýjað ca. 2012. Þá var skostenn fjarlægður.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur framan við húsið
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita / Eirlagnir
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignin Kirkjugata 13, Hofsósi ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum.
Björt og vel skipulagt fimm herbergja steypt einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr, alls 245,5 fm.
Skráð stærð íbúðarinnar er 201,6 fm. og bílskúrs 43,9 fm. Byggingaár er 1975.
Leigulóð hússins er 824 fm.
Skemmtileg eign á góðum stað.


Fasteignin skiptist í fjögur herbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, forstofu og kjallara.
Komið er í flísalagða forstofu þar sem er góður skápur.
Við forstofu er herbergi og gestasnyrting sem er hvort tveggja flísalagt. 
Stofa er björt. Parket á gólfi og stórir gluggar til suðurs. 
Eldhús er með dúkflísum á gólfi, viðarinnréttingu og ljósri borðplötu. Eldavél og uppþvotta er frá Siemens.
Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús. Þar er vaskaborð, gott skápapláss og hurð út í garð norðan við húsið.
Kjallari er undir húsinu að hluta og er gengið til hans frá þvottahúsi. 
Við herbergisgang eru þrjú herbergi og baðherbergi. Við enda herbergisgangs er svalahurð.
Herbergisgangur er parketlagður.
Baðherbergi var endurnýjað í kringum aldamótin. Flísar eru á gólfi og veggjum, góð viðarinnrétting við vask og ljós borðplata. Á baðherbergi er bæði baðkar og sturta. 
Herbergi eru með dúkflísum. Gott skápapláss er í hjónaherbergi. 

Bílskúr er rúmgóður. Bílskúrshurðir eru nýlegar en rafmagnsopnun virkar ekki.
Hurð í garð frá bílskúr.

Að utan er ástand hússins gott. 
Húsið var málað að utan haustið 2024.
Gluggar voru málaðir haustið 2024.
Þakjárn og þakpappi var endurnýjað ca. 2012.
Pallur og skjólvegg er sunnan við húsið.
Steypt og hellulögð stétt er framan við húsið. 

Hofsós er lítið kauptún við austanverðan Skagafjörð með fjölbreytt framboð þjónustu. Þar eru m.a. leik- og grunnskóli, sundlaug, bensínstöð, verkstæði, matvöruverslun og veitingaþjónusta. Útsýni er yfir eyjar Skagafjaðar er einstaklega fallegt og stutt er í fallega náttúru og útivist.

Í lögum um fasteignakaup er lögð áhersla á skoðunarskyldu kaupanda. Væntanlegir kaupendur eru hvattir til að kynna sér ástand eignarinnar vandlega og afla sér aðstoðar sérfræðinga  við frekari skoðun sé þess þörf að þeirra mati. Sú áhætta fylgir kaupum á fasteignum að ekki er hægt að átta sig á ástandi á þeim hlutum eignarinnar sem ekki sjást við venjulega skoðun svo sem fráveitu-, vatns- og miðstöðvarlögnum svo og þaki eftir atvikum.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/12/201918.400.000 kr.17.750.000 kr.245.5 m272.301 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1975
4.4 m2
Fasteignanúmer
2143649
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.500.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Árbakki 2
Bílskúr
Skoða eignina Árbakki 2
Árbakki 2
531 Hvammstangi
203.9 m2
Einbýlishús
615
289 þ.kr./m2
59.000.000 kr.
Skoða eignina Húnabraut 16
Bílskúr
Skoða eignina Húnabraut 16
Húnabraut 16
540 Blönduós
215.8 m2
Einbýlishús
716
278 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnubraut 7
Bílskúr
Skoða eignina Sunnubraut 7
Sunnubraut 7
540 Blönduós
228.4 m2
Einbýlishús
624
268 þ.kr./m2
61.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin