Fasteignaleitin
Skráð 8. maí 2026

Grenigrund 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
125.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
636.146 kr./m2
Fasteignamat
83.150.000 kr.
Brunabótamat
63.920.000 kr.
Mynd af Vilborg Gunnarsdóttir
Vilborg Gunnarsdóttir
Löggiltur Fasteignasali
8918660domusnova.isEignalisti
Byggt 1963
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2061045
Landnúmer
114467
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt, endurnýjað í íbúð
Raflagnir
Endurnýjað að hluta / rafmagnstafla endurnýjuð í íbúð. að sögn seljenda
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Endurnýjað 2006 - Járn og pappi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
2
Lóð
39
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Lauslega rætt en ekki ákveðið að það þyrfti að fara að mála húsið að utan en sýnilega þarf að fara að gera það í náinni framtíð.
Að sögn seljenda mætti skipta um lofttúðu á þaki - hún er komin á tíma.
 
Gallar
Handrið vantar á svalir yfir inngang húss.
Bílskúrinn þarfnast endurbóta. Bílskúrshurð léleg.
Gluggi í hjónaherbergi er lélegur og viðurinn fúinnþ. 
Gluggi í baðherbergi lélegur.
Parket á gólfi í herbergjum og holi er lagt þannig að það flýtur ekki og það er bil við þröskulda.
Einhverjar / flestar rúður þarfnast endurnýjunar / sumstaðar komin óhreinindi á milli.
Glerlistar þarfnast endurnýjunar og eða málningar.
Athuga þarf með rafmagn í bílskúr þar sem dós í bílskúr er með brunamerki.
 
Domusnova og Vilborg kynna nýtt á einkasölu:
4ra HERBERGJA SÉRHÆÐ
MEÐ BÍLSKÚR Í FJÖLSKYLDUVÆNU OG GRÓNU HVERFI VIÐ GRENIGRUND 6, KÓPAVOGI.


Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur með 1.hæð, gengið upp teppalagðan stiga að íbúð á stigapall með útgengi á svalir.
Hol er rúmgott og tengir vistarverur íbúðar saman.  Fatahengi í holi, parket á gólfi. 
Eldhús var endurnýjað 2018. Hvít Ikea innrétting með góðum skápum.  Innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar í vinnuhæð og span helluborð.
Stofa/borðstofa liggur saman í opnu rými með eldhúsi.  Parket á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú öll með plastparketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp þaðan er útgengi á austur svalir. 
Herbergi II er rúmgott.  Gluggar til austurs.
Herbergi III með gluggum til norðurs. 
Baðherbergi var endurnýjað 2019, flísalagt í hólf og gólf,  með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél.
Sér geymsla íbúðar er í sameign í kjallara hússins. 
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara, gengið er í frá stigagangi á 1. hæð.Útgengt er frá þvottahúsi út á bílaplan norðan megin húss.
Bílskúr: 26,2 fm, gluggar á suðurhlið bílskúrs.
Sér bílastæði íbúðar framan við bílskúr. Auk þess eru sameiginleg bílastæði á lóð.

Að sögn seljanda hafa eftirfarandi endurbætur átt stað á húsi af fyrri eigendum:
  • Þakið var tekið í gegn 2006 og var þá sett nýtt járn - unnið af fagaðila.
Núverandi eigendur hafa farið eftirtaldar endurbætur á eigninni að þeirra sögn:
  • Eldhús fært inn í stofurýmið. Nú er svefnherbergi þar sem áður var eldhús. (unnið af eiganda)
  • Baðið endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf.  Sett upp sturta þar sem áður var baðkar og öll tæki endurnýjuð ásamt lögnum.
  • Íbúðin parketlögð.
  • Skipt um rafmagnstengla og slökkvara að mestu.
  • Rafmagnstafla endurnýjuð bæði í húsi og í íbúð.
  • Bílskúrinn málaður að utan 2023.
  • Stigagangur í sameign málaður 2019.
Staðsetning eignarinnar er á fjölskylduvænum og eftirsóknaverðum stað í Kópavogi. Um er að ræða afar veðursælan stað í næsta nágrenni við Fossvogsdalinn með alla sína útivistarmöguleika.
Stutt er í Snælandsskóla, Álfhólsskóla, leikskóla og íþróttasvæði. 


Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir, sími 891 8660 / vilborg@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/12/201631.500.000 kr.35.000.000 kr.125.6 m2278.662 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1974
26.2 m2
Fasteignanúmer
2061045
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.020.000 kr.

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rauðagerði 20
Bílskúr
Skoða eignina Rauðagerði 20
Rauðagerði 20
108 Reykjavík
128.8 m2
Fjölbýlishús
412
734 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D2 309
Opið hús:06. sept. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D2 309
108 Reykjavík
138.5 m2
Fjölbýlishús
322
1068 þ.kr./m2
147.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 401
Opið hús:06. sept. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D1 401
108 Reykjavík
121.7 m2
Fjölbýlishús
312
1108 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35 (306)
Opið hús:06. sept. kl 15:15-15:45
Diddi_vefur (29).jpg
Hringhamar 35 (306)
221 Hafnarfjörður
110.2 m2
Fjölbýlishús
413
730 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin