Frábær staðsetning - Helgafell fasteignasala ehf. og Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna fallegt og snyrtilegt einbýlishús við Krosseyrarveg 14 í Hafnarfirði. Húsið hefur á síðustu árum verið mikið endurnýjað bæði að innan sem að utan. Nýlegur vínildúkur á eldhúsi og stofu / borðstofu á miðhæð. Hiti á gönguleið og útidyratröppum sem og hellulögðu bílastæði. Öll útiljós eru tengd sólarsellu og með snjallstýringu.
EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.SMELLTU HÉR TIL AÐ NÁLGAST SÖLUYFIRLITMiðhæðin:Komið er inn
forstofu - flísar á gólfi.
Baðherbergi - flísar á gólfi - nýleg innrétting - baðkar með sturtuaðstöðu - stór gluggi.
Eldhús - nýr vínilparket á gólfi - fín innrétting - keramikk helluborð - flísar milli efri og neðri skápa - stigi á jarðhæð.
Stofa / Borðstofa - nýr vínilparket á gólfi - rúmgóð og björt - góðir gluggar.
Risið:Hjónaherbergi - parketdúkur á gólfi - rúmgott.
Jarðhæðin:Stigi handan við eldhús.
Herbergi - góð lofthæð - hægt að loka og nýta sem svefnherbergi - vínilparket á gólfi.
Þvottahús - rúmgott og bjart - góð lofthæð - hillur - málað gólf - gluggar á tvo vegu.
Útgengt á
sólpall í baklóð.
Húsið hefur á síðustu árum mikið verið tekið í gegn. Árið
1996 var nýtt rafmagn dregið í húsið ásamt pípulögnum. Árið
2017 var jarðhæðin öll múruð að utan og máluð. Sama ár var sett nýtt járn á þakið og nýr þakpappi og skipt um þær sperrur sem þurfti. Árið
2019 var smíðaður nýr sólpallur með skjólveggjum. Árið
2023 var mokað frá öllu húsinu og settur drendúkur og ný möl. Sama ár var bílaplan hellulagt og settur hiti í það.
Stutt er í skóla og leikskóla sem og góð útivistarsvæði á Víðistaðatúni og Hellisgerði. Einnig er stutt í miðbæ Hafnarfjarðar.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma
842 2217 / gunnar@helgafellfasteignasala.is