Nordik fasteignasala kynnir eignina Klettaborg 38, 600 Akureyri.
- Hafðu samband í síma 4621212 eða í tölvupósti á nordik@nordikfasteignasala.is -Klettaborg 38 er 116,5 fm. raðhúsaíbúða á 2 hæðum, með stórum sólpalli og heitum pott. Fasteignin er á góðum stað í klettaborgum á Akureyri, stutt í Háskólan, Glerártorg og í flesta aðra þjónustu. Hiti er í gólfum í allri íbúðinni. Á efri hæð eru svefnherbergi og salerni en á þeirri neðri er stofa, eldhús, þvottahús og geymsla. Næst þannig ró á efri hæð þar sem aðeins eru svefnherberbergi, þótt gengið sé um neðri hæð hússins.
Eiguleg eign á góðum stað á Akureyri.
Nánari lýsing:Neðri hæð:
Forstofa, með fatahengi, flísum á gólfum,
Eldhús, er opið, með fallegri eikarlitaðri innréttingu, helluborði og ofn. Parketflísar á gólfum.
Stofa/borðstofa, sameiginleg með eldhúsi, með flísum á gólfum, þaðan gengið út á stóran sólpall.
Þvottahús og geymsla, í sitthvoru rýminu.
Efri hæð:
Stigi, er parketlagður með innbyggðri lýsingu.
Hjónaherbergi, með góðum fataskáp, útgengt á svalir. Korkparket á gólfi.
Herbergi, eru tvö til viðbótar, bæði með fataskáp, annað með flísum og hitt parketflísum.
Annað:- Eign sem getur verið laus mjög fljótt.
- Rafmagnspottur á stórum palli fylgir.
- Allt innbú getur fylgt með.
- Hiti er í gólfum í allri íbúðinni.
Nánari upplýsingar veitir
Andrés Már Magnússon lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 4621212 eða í tölvupósti á nordik@nordikfasteignasala.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Nordik fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.