Fasteignasalan TORG kynnir: Bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja enda íbúð á fjórðu hæð í nýlegu húsi á Hverfisgötu 85 í miðbæ Reykjavíkur.Eignin er íbúð 403 og er skráð 64,9 fm.
Eignin skiptist í forstofu, bjart alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, svalir, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stæði í bílakjallara og geymsla í kjallara.
Allar nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali í síma 623-8889 og unnur@fstorg.isNánari lýsing:Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan, byggt árið 2019.
Anddyri: Komið er inn í góða forstofu með þreföldum skáp og flísum á gólfi.
Alrými: Samliggjandi eldhús, borðstofa og stofa með gólfsíðum gluggum og útgengi út á svalir til vesturs. Fallegt útsýni af svölum.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með ljósum stein á borðum og vönduðum eldhústækjum. Innbyggð uppþvottavél. Eldhúseyja með gufugleypi og helluborði.
Borðstofa og stofa: Bjart rými með gólfsíðum gluggum á tvo vegu.
Baðherbergi: Hvít innrétting, "walk in" sturta og vegghengt salerni. Flísar á gólfi og sturtuveggjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með hvítum fimmföldum fataskáp.
Gólfefni á íbúðinni er fallegt ljóst harðparket nema í forstofu og baðherbergi.
Bílakjallari er á tveimur hæðum, keyrt er inn frá Vitastíg. Íbúðinni fylgir merkt stæði í lokuðum bílakjallara ásamt góðri geymslu.
Björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð í nýlegu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Stæði í bílageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali í síma 623-8889 og unnur@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.