Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Kjarnagata 51 íbúð 101 - Nýleg 4ra herbergja íbúð á 1. hæð í norður enda í fjölbýli með lyftu í Hagahverfi - stærð 104,8 m², þar af telur sér geymsla í kjallara 6,6 m²Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, tvö barnaherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi inn af. Eigninni fylgir sér geymsla í kjallara.
Forstofa og gangur eru með vinyl parketi á gólfi og tvöföldum skáp.
Eldhús, vönduð tvílit innrétting með þiljum á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél. Við borðstofuborð er skemmtilegur gluggi með útsýni til norðurs.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem er vinyl parket á gólfi og gluggar til tveggja átta. Úr stofu er rennihurð út á steyptar og yfirbyggðar svalir, skráðar 6,9 m² að stærð. Hönnun handriðs og svala er með þeim hætti að auðvelt er að koma fyrir svalalokun í framtíðinni.
Svefnherbergin eru þrjú, tvö barnaherbergi með vinyl parketi á gólfi og fataskápum og svo hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi inn af. Góð innrétting er í fataherberginu og á baðherbergi eru flísar á gólfi og hluta veggja, innrétting, upphengt wc og sturta. Stærð barnaherbergja er skv. teikningum 10,1 m²
Aðal baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja, vandaðri tvílitri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, upphengdu wc, sturtu og opnanlegum glugga.
Í kjallaranum er
sér geymsla, skráð 6,6 m² að stærð.
Annað- Sameiginleg hjóla og vagna geymsla er í kjallaranum
- Sérstakur vélrænn loftskiptibúnaður með tilheyrandi loftræsilögnum er í íbúðinni þar sem ferskt loft er hitað upp með útkastslofti.
- Hljóðdempandi plötur eru í loftum í felstum rýmum.
- Mynd-dyrasími
- Gólfhiti er í íbúðinni.
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Eignin hefur verið í útleigu frá byggingu og seljandi því með takmarkaðar upplýsingar um ástand eignarinnar.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.