Díana og Hulda löggiltir fasteignasalar hjá fasteignasölunni Garður kynna fallega 4 ja herbergja vel skipulagða og bjarta íbúð á 2.hæð að Burknavöllum 17C í Hafnarfirði. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Birt stærð 109,9 fm. nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer
226-2514 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
***** Lækkað verð *****
Ýttu hér til að fá söluyfirlitSkipulag: Opið rými með eldhúsi, borðstofu, stofu, útgengt á svalir frá stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús þar innaf. Gengið er inn af sameiginlegum svölum sem eru glerjaðar og svalir frá stofu sem vísa í suður. Geymsla á jarðhæð og sameiginlegt hjólarými er í kjallara eignar ásamt sameiginlegum palli fyrir aftan hús sem snýr einnig í suður með miklu útsýni
Nánari lýsing:
Forstofa: Fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg innrétting og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa: Parket á gólfi og útgengi út á svalir sem snýr til suðurs.
Hjónaherbergi: Fataskápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi: Fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi: Fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Bað með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting með handlaug, handklæðaofn og flísum í hólf og gólf.
Þvottahús: Inn af baðherbergi. Þar eru hillur, vaskur og flísar á gólfi og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: Í sameign.
Bílastæði: Næg fyrir utan húsið.
Um er að ræða góða eign á rólegum stað í Vallahverfinu í Hafnarfirði. Íbúðin er með sérinngangi af svölum sem hefur verið lokað með gleri.
Stutt er að ganga í grunn- og leikskóla. Verslanir, apótek, bakarí, sundlaug, líkamsræktarstöðvar og íþróttasvæði Hauka eru í göngufæri ásamt annarri þjónustu í næsta nágrenni. Fallegar gönguleiðir eru í hverfinu og í kringum Ástjörn og Hvaleyrarvatn.
Nánari upplýsingar veita:
Díana Arnfjörð s.895 9989 Löggiltur fasteignasali
Hulda Ósk s.771 2528 Löggiltur fasteignasali