Jörðin, Meiðavellir 0, 671 Kópasker, ásamt öllum byggingum sem á henni eru, og öllu sem henni fylgir og fylgja ber að engu undanskildu.
Fastanúmer eignarhluta: 216-5857, 216-5857, 216-5857, 216-5857, 216-5857, 216-5857, 216-5857, 216-5857, 216-5857, 216-5857, 216-5857.
Jörðin Meiðavellir stendur á vesturbarmi Ásbyrgis og er milli 8-900 hektarar að stærð. Búið er að hnitsetja landamerki Meiðavalla og þjóðgarðs (skógarlína) og suðurmörk jarðar. Önnur merki eru skýrt tekin fram á landamerkjabréfum. Víðsýnt er frá jörðinni til vesturs, norðurs og austurs.
Á jörðinni er gríðarstór sjálfsprottinn birkiskógur sem er á náttúruminjaskrá ríkisins. Í gegnum hann á þremur stöðum liggja gamlir vegslóðar sem nýttir eru sem göngu- og reiðleiðir. Allir slóðar tengjast báðu megin skógarins. Austasti vegslóðinn liggur með veggjum Ásbyrgis og upp á bjargbrúnina við botn Ásbyrgis og tengist inn á aðrar gönguleiðir í þjóðgarðinum. 250 hektarar af skóginum tilheyra þjóðgarðinum og þ.á.m. austasti vegslóðinn.
Jörðin hentar líka einstaklega vel undir hrossarækt/hrossabúskap þar sem ótal magnaðar reiðleiðir liggja um svæðið bæði innan sem utan jarðar. Á jörðinni hefur verið starfrækt lítil ferðaþjónusta síðan 2018 við gott orðspor og velgengni. Þrjú lúxus 27m2 stúdíóhús standa á vesturbarminum sem býður upp á glæsilegt útsýni. Áhersla hefur verið lögð á “Slow travel” ferðamanninn sem og prívat gesti sem dvelja á staðnum. Einnig er starfrækt skutlþjónusta fyrir göngufólk innan þjóðgarðsins. Um 43 hektarar af túnum eru á jörðinni sem ekki hafa verið slegin í þó nokkur ár. Mikið hreinsunarstarf hefur átt sér stað á jörðinni undanfarin ár en þó nokkur vinna sé enn fyrir höndum.
Drónamyndband af jörðinni: https://www.instagram.com/p/C_z5wLts2u_/
Húsbyggingar á jörðinni:
1. Íbúðarhús byggt 1930 á þremur hæðum 123,2m2 (kjallari, hæð, ris) auk viðbyggingar, 35.4m2, byggt 1973. Heildarstærð húsnæðisins er því samkvæmt fasteignaskrá 158,6 m2. Á aðalhæð er eldhús, stofa og svefnherbergi. 3 svefnherbergi eru í risi. Í viðbyggingu er anddyri, baðherbergi og þvottahús. Búið er að byggja við húsið viðbótartimburviðbyggingu en þar er bakdyrainngangur, góð þvottaaðstaða og lítil geymsla/búr. Kjallari er hrár en er að sömu stærð og skipulagi og aðalhæð en lofthæð þar er um 185 cm.
Húsið þarfnast mikillar endurnýjunar að utan og innan:
Ljósleiðari er tengdur inn og búið er að einangra og drena kjallarann að utanverðu.
3ja fasa rafmagn er komið inn en á eftir að tengja í töflu.
Endurnýja þarf allt rafmagn og setja upp nýja töflu.
Endurnýja þarf þak og glugga sem og að einangra hús að utan.
Setja þarf upp varmadælu í húsið.
2. Hlaða skráð 208,3 m2 samkvæmt fasteignaskrá byggð 1988. Mikil lofthæð er sem býður upp á margskonar nýtingu.
3. Tveir gamlir súrheysturnar tæpir 13 m2. Annar staðsettur við hlið íbúðarhúss, hinn við hlið hlöðu. Býður upp á ýmsa möguleika.
4. Gömul steypt vélageymsla byggð 1951, skráð 40,6 m2. Ástand hússins er ekki gott en tækifæri til ýmissar uppbyggingar/endurnýjunar.
5. Þrjú 27m2 stúdíóhús/ferðaþjónustuhús byggð 2018. Í góðu standi en kominn tími á eðlilegt viðhald.
Á jörðinni er hvorki vatnsveita né hitaveita. Jörðin situr á svokölluðu köldu svæði.
Milli íbúðarhúss og hlöðu er 40 metra fóðruð borhola sem sér jörðinni fyrir ferskvatni. Holan hefur ekki verið mæld en seljandi hefur aldrei orðið var við truflun á vatnsmagni. Í Kelduhverfi er mest allt ferskvatn neðanjarðar.
Hér er um gríðarlega spennandi jörð að ræða sem býður upp á mikla möguleika og þá sérstaklega með tilliti til ferðaþjónustu. Dettifossvegur liggur í gegnum jörðina og tengist inn á þjóðveg 85 sem er hluti af Norðurstrandaleið (Arctic Coast Way). Gríðarlega mikið útsýni er á jörðinni og víðsýnt til flestra átta þar sem t.d. miðnætursólin skartar sínu fegursta á sumrin, ágúst birtan er einstök og norðurljósin njóta sín á veturna.
Segja má að staðsetning jarðarinnar sé einstök m.t.t. ferðaleiða til allra átta:
1. Dettifossvegur – Hljóðaklettar – Dettifoss – Mývatn – Hálendið.
2. 40 mín. akstur á Húsavík – Hvalaskoðun – Sjóböðin o.fl.
3. 40-50 mín. akstur út á Melrakkasléttu – Raufarhöfn – Heimskautsgerðið – Nyrðstu oddar og þorp landsins.
4. 2-4 km akstur inn í Ásbyrgi.
Kvaðir og önnur eignarbönd:
Eignarheimild seljanda /seljenda sjá afsal með þinglýsingarnúmeri: 447-L-002447/2016 .
Kvaðir:
Land neðan þjóðvegar er í umsjón Landgræðslunnar sem uppgræðsluland, ágreiningur hefur verið um eignarhald á því.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.