Atvinnueign kynnir til leigu: 367 fm skrifstofurými á 2. hæð, öll hæðin, á Hafnarstræti 18.
Um er að ræða tvö aðskilin, opin vinnurými sem gefa sveigjanleika í skipulagi, fjögur fundarherbergi sem nýtast vel fyrir fundi, viðtöl eða einbeitingarvinnu, auk salernis- og kaffiaðstöðu á hæðinni.
VSK bætist við leiguverð. Laust sumarið 2027. Hafnartorgssvæðið er nútímalegt borgarhverfi sem hefur byggst hratt upp á síðustu árum, þar sem blandast saman íbúðir, skrifstofur, hótel, verslanir og þjónusta ásamt menningartengdri starfsemi. Undir svæðinu er stærsti bílakjallari landsins, með þremur innkeyrslum og fjölda uppganga, meðal annars með lyftum og rúllustigum beint upp á göngugötur og verslunarsvæði.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma
847-7700 eða
olafur@atvinnueign.is Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueignar ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag –