Fasteignaleitin
Skráð 23. mars 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
70 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
39.700.000 kr.
Fermetraverð
567.143 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
910290324
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góðar svalir og möguleiki á þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR NÝTT Í SANTA ROSALIA:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR MEÐ STÆÐI Í BÍLAKJALLARA – GLÆSILEGT RESORT*

Vandaðar og fallegar íbúðir á frábærum stað Í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT.
Hægt er að velja um íbúðir á jarðhæð með sér garði, miðhæðir með svölum eða efstu hæð með þakverönd. Glæsilegur sundlaugargarður.


Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm. Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Sjón er sögu ríkari. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið er nýr og glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum, glæsilegu útsýni yfir Santa Rosalia vatnið og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.

ALGJÖR NÝJUNG Á FASTEIGNAMARKAÐNUM Á SPÁNI. TILVALIÐ TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA.
Fyrstu áfangar seldust upp á nokkrum dögum. Nýr áfangi var að koma í sölu og því góður tími til að velja góða íbúð áður en þessi áfangi selst upp. 
Um er að ræða 60 íbúðir í fjórum blokkum.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.


Nánari lýsing
Komið er inn í gott opið alrými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu alrými með útgengi út á verönd.
Tvö svefnherbergi með góðum fataskápum og tvö baðherbergi, í annað er innangengt úr svefnherbergi.
Rafmagnstæki í eldhúsi fylgja.
Sérstæði í bílakjallara og geymsla.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Sameiginlegur sundlaugargarður með tveimur sundlaugum, önnur verður upphituð.
Frábær leikaðstaða fyrir börnin og góð aðstaða til útivistar.

Hægt er að fá íbúðirnar fullbúnar húsgögnum gegn vægu aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.

Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia lóninu, með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum.
Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.

Verð miðað við gengi 1 Evra=150 ISK:
3ja herb. íbúð á miðhæðum (Tvö svefnherbergi + tvö baðherbergi): verð frá 265.000 Evrum (39.700.000ISK)
3ja herb. íbúð á jarðhæð með sér garði (Tvö svefnherbergi + tvö baðherbergi):UPPSELT
3ja herb. íbúð á efstu hæð (penthouse) með sér þaksvölum (Tvö svefnherbergi + 2 baðherbergi) verð frá 339.000 Evrum (50.800.000ISK)
Ofan á öll verð leggst 10% skattur og ca. 3% kostnaður vegna kaupanna, þannig að samtals kostnaður vegna kaupanna er ca. 13% af kaupverði.

Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar í des 2024 til mars 2025.

Hægt er að festa sér íbúð með greiðslu á 6.000 evrum.
Kaupverð greiðist í áföngum eftir framvindu verksins og samkomulagi, 40% á byggingartímanum, og rest við afhendingu fullbúinnar eignar.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandaðaða eign með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is


Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, verönd, golf, sundlaugargarður, 
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
910290324

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
Spánn - Costa Blanca
88 m2
Fjölbýlishús
322
439 þ.kr./m2
38.600.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Zenia
SPÁNAREIGNIR - La Zenia
Spánn - Costa Blanca
87 m2
Fjölbýlishús
322
453 þ.kr./m2
39.400.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR-San Pedro del Pinatar
SPÁNAREIGNIR-San Pedro del Pinatar
Spánn - Costa Blanca
82 m2
Fjölbýlishús
423
466 þ.kr./m2
38.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Filipinas
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Filipinas
Spánn - Costa Blanca
82 m2
Fjölbýlishús
322
476 þ.kr./m2
39.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache