Fasteignaleitin
Skráð 22. apríl 2024
Deila eign
Deila

Eyjólfsstaðaskógur 37

SumarhúsAusturland/Egilsstaðir-701
67.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
50.900.000 kr.
Fermetraverð
750.737 kr./m2
Fasteignamat
17.050.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2012
Garður
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2325880
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Kvöð / kvaðir
Skjal nr. 426-E-000161/2012. Forkaupsréttur leigusala að mannvirkjum. Forleiguréttur leigutaka að loknum samningstíma
Skjal nr. 446-E-000929/2020. Forkaupsréttur landeiganda
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu EYJÓLFSSTAÐASKÓGUR 37, 701 Egilsstaðir. Sumarhús/Heilsárshús á vinsælum stað í Eyjólfsstaðaskógi. Opið svæði er aftan við húsið og útsýni til fjalla. Smellið hér fyrir staðsetningu. 
Húsið er timburhús á einni hæð, birt stærð 67.8 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, gangur og geymsla. 

Nánari lýsing: 
Forstofa, fatahengi, frá forstofu er komið inná gang sem liggur að öðrum rýmum hússins. Rafmagnstafla er í forstofu.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er á tveimur stöðum úr alrými út á timburverönd.
Eldhús, eldavél með helluborði, ofn og uppþvottavél, vifta, stálvaskur, 
Tvö svefnherbergi eru í húsinu. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vaskinnrétting, upphengt salerni, sturta og handklæðaofn. Útgengt er frá baðherbergi, tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi. 
Geymsla er áföst við húsið, gluggi, heitavatninnstak og gólfhitakista er í geymslu. 
Gólfefni: Flísar eru á öllum gólfum. Gólfhiti er í húsinu, Danfoss stýringar á veggjum.
 
Húsið er timburhús á steyptum grunni. Húsið er klætt að utan með bandsagaðri klæðningu. Gluggar og hurðar úr timbri. Þak er klætt bárujárni. 
Timburverönd u.þ.b. 100 m² umlykur húsið á alla vegu. Heitur pottur 6-8 manna er á verönd. Malarplan er við húsið. Rotþró er við húsið. 
Húsið er skráð á byggingarstig B2 fokhelt og matsstig 4 fokhelt, þegar það kemur í sölu, Skráning eignarinnar mun vera komin á byggingarstig B4, matsstig 7, það er fullbúin eign fyrir afhendingu.

Lóðin er gróin og stendur innarlega við botnlanga í skipulögðu sumarbústaðalandi. Lóðin er 5146,0 m², leigulóð til 30 ára frá 7. nóvember 2012. Svæðið er í skógi vaxinni hlíð, að stærstum hluta birkiskógur.  
Á lóðinni gilda reglur sveitarfélagsins um húsdýra- og gæludýrahald. Óheimilt er að grisja skóglendi á lóðini umfram það sem nauðsynlegt er vegna eðlilegra nota af lóðinni. Allt óþarfa jarðrask er óheimilt. Öll meðferð skotvopna er bönnuð.
Samkvæmt deiliskipulagi svæðisins er aðeins heimilt að reisa eitt hús ásamt útihúsi. Hver bústaður má vera allt að 150 m² að grunnfleti, auk þess má byggja á lóðinni útihús (geymsla, gestahús og gróðurhús) allt að 40 m² að stærð.
Smellið hér til að sjá deiliskipulag Eyjólfsstaðaskógar, svæði D,E og F.
Smellið hér til að sjá landeignaskrá land númer 220690.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
Stærð: Sumarbústaður 67,8 m².
Byggingarár: 2012
Byggingarefni: Timbur

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byr fasteignasala
https://www.byrfasteign.is
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache