Baldur fasteignasali -
Beinn sími 450 0000 kynnir: Falleg og vel skipulögð
3ja herbergja íbúð með
stórum sólpalli á jarðhæð í snyrtilegu lyftuhúsi við Andrésbrunn 5 í Grafarholti. Eignin er með stórum sólpalli sem snýr í suður með
útgengi út í garð, sérgeymslu og hlutdeild í lokuðum bílskúr. Gegnheilt flæðandi
eikarparket lagt árið 2025 er í allri íbúðinni nema á flísalögðum svæðum sem eru geymsla, þvottahús og baðherbergi.
Sæmundarskóli ásamt leikskólunum Geislabaugi og Reynisholti eru í göngufjarlægð.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 93,20 fermetrar en eigninni fylgir einnig þriðjungs hluti í uþb. 76 fermetra lokuðum bílskúr sem tilheyrir þremur íbúðum og er ekki innifalinn í skráðri fermetratölu eignarinnar.
Nánari lýsing:Forstofa: Góð forstofa með fataskáp, hillu og plássi fyrir skóhillu. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Útgengt er út á stóran sólpall sem snýr í suður og þaðan beint út í garð.
Eldhús: Falleg viðarinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi og tengi fyrir uppþvottavél. Helluborð, bakaraofn og vifta.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu með skápum. Vegghengt klósett og baðkar með sturtu og gleri.
Þvottahús: Þvottahús er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél, vinnuaðstöðu og skápum.
Geymsla: Rúmgóð sérgeymsla innan íbúðar. Flísar á gólfi.
Bílskúr: Eigninni fylgir þriðjungs eignarhluti í um 76 fm lokuðum bílskúr sem er sameiginlegur fyrir þrjár íbúðir. Um er að ræða verulegan kost sem býður upp á gott geymslu- og bílastæðarými.
Húsið: Snyrtilegt lyftuhús á vinsælum stað í Grafarholti. Sameign er vel um gengin og umhverfið rólegt og fjölskylduvænt.
Staðsetning: Frábær staðsetning þar sem stutt er í leikskóla, skóla, verslun, þjónustu, fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Grafarholt er eftirsótt hverfi sem hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldur.
Falleg, björt og vel skipulögð eign með stórum suðursólpalli, garði og einstökum aukakosti í formi hlutdeildar í lokuðum bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli -
Verðmat fasteigna -
Lúxus fasteignir -
Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt