Fasteignaleitin
Skráð 7. sept. 2024
Deila eign
Deila

Grensásvegur 1F - 0701

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
97.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
134.800.000 kr.
Fermetraverð
1.379.734 kr./m2
Fasteignamat
33.850.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Þyrí Guðjónsdóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2522220
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
7
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
7
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Upphitun
Sameiginlegur
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Valborg fasteignasala kynnir íbúð 07-01 að Grensásvegi 1F, 108 Rvík.  Glæsileg 97,7 m², 3ja herbergja íbúð á 7. hæð með aukinni lofthæð, þar af geymsla 6,4 m² og 10,8 m² svalir.
 
Íbúðin sem er hluti af nýbyggingu, er eins og aðrar íbúðir í húsinu alveg sérlega vönduð.  Íbúðin er til afhendingar fullbúin, með öllum eldhústækjum, led ljósum og gólfefnum í desember 2024. Gólfsíðir gluggar í öllum íbúðum gerir þær mjög bjartar og fallegar.  Hiti í gólfum. 
Baðherbergin verða alveg fullfrágengin, fallegar dökkar flísar frá Amani Matt 60 x 120 cm á votrýmum. Uppsett innfelld blöndurtæki í sturtu, hert sturtugler, salerni og handklæðaofn.
Gólfefni í allri íbúðinni er fallegt og sérstaklega slitsterkt, vatnsþolið harðparket og fallegar flísar frá Soho á votrýmum. Hugsað er fyrir öllum helstu smáatriðum í íbúðunum.
Staðsetning hússins er í nánasta nágrenni við vinsælasta útivistarsvæði borgarinnar, öll þjónusta og verslun er þarna í göngufæri.  Í allri hönnun á húsinu er tekið sérstakt tillit til fólks í hjólastólum.  Geymsla fylgir hverri íbúð í húsinu. Íbúar hafa aðgengi að leigustæðum í snyrtilegum bílakjallara sem stendur undir húsinu.  Myndir eru ekki úr viðkomandi íbúð, heldur sýningaríbúð.

Nánari upplýsingar veita:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali,  í síma 891 9867 eða thyri@valborgfs.is.
María Guðrún Sigurðardóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 820 1780 eða maria@valborgfs.is.
Elvar Guðjónsson, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 895 4000 eða elvar@valborgfs.is.
Jónas Ólafsson, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 824 4320 eða jonas@valborgfs.is.


Nánari lýsing:
Íbúðum á 7. hæð er skilað með eldhús-, bað- og þvottahúsinnréttingum (sér þvottahús er ekki í öllum íbúðum), einnig fylgja öll eldhústæki þ.m.t. ísskápur, uppþvottavél og gufugleypir ofl. Þá fylgja fataskápar í forstofu og svefnherbergjum/fataherbergjum. Innréttinga og borðplötur eru í dökkum eikarlit í bland við hvítar háglans hurðar. Svartur yfirfelldur vaskur og blöndunartæki frá Hansgrohe. LED lýsing/ljós er undir yfirskápum. Ljúflokun er á öllum skúffum. Einnig fylgir með hnífaparaskúffa og ruslafata. Innfelld LED lýsing/ljós í lofti  Gólfhiti verður í öllum rýmum íbúða. Öll votrými verða flísalögð með dökkum Amani Matt flísum, 60 x 120 cm. Sér þvottaherbergi fylgir þessari íbúð.
Gólfhiti verður í öllum rýmum íbúða. Hitastýring í rýmum íbúðar.
Í stofu, eldhúsi, baðherbergi og anddyri verður innfelld LED lýsing.
Í þvottaherbergi verður ljóskúpull.
Ljós verða á svölum og við innganga. Lýsing verður við gönguleiðir á lóð.
Ofnar eru í sameign og á geymslusvæðum fyrir utan sjálfan bílakjallarann.
Lyftur af vandaðri gerð frá framleiðandanum Schindler.
Endanleg skil íbúða miðast við skilalýsingu eignarinnar, hægt að skoða inn á Fasteignafélagið G1 ehf. - www.g1.is, en þar eru nákvæmar upplýsingar um eignina.
Allar fermetratölur íbúða eru birtar með fyrirvara. Eignaskiptayfirlýsing gildir.


Deilibílar.
Stefnt er að því að deilibílar verði hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1A. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og starfsfólk fyrirtækja á lóðinni. Fyrirkomulag liggur ekki endanlega fyrir, en markmiðið er leigufyrirkomulag þar sem einfalt app verður notað fyrir aðgengi að bílunum og mögulegir notendur líklega forskráðir.
Nánari skilalýsingu er að finna á vef byggingaraðila: www.g1.is eða á skrifstofu Valborgar ehf. í Nóatúni 17, 2. hæð.
Flísar frá Amani Matt.
Öll blöndunartæki frá Grohe og HansGrohe (innbyggð).

Eignin Grensásvegur 1F - 0701 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-2220, birt stærð 97,7 m².

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensásvegur 1A - 0707
Grensásvegur 1A - 0707
108 Reykjavík
97.7 m2
Fjölbýlishús
312
1380 þ.kr./m2
134.800.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1F íb.701
Grensásvegur 1F íb.701
108 Reykjavík
97.7 m2
Fjölbýlishús
32
1380 þ.kr./m2
134.800.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1A íb.707
Grensásvegur 1A íb.707
108 Reykjavík
97.7 m2
Fjölbýlishús
312
1380 þ.kr./m2
134.800.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1A 708
Grensásvegur 1A 708
108 Reykjavík
115.4 m2
Fjölbýlishús
312
1170 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin