ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Arnarás 7, 210 Garðabær, birt stærð 127.7 fm.Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi, staðsett í hinu eftirsótta Ásahverfi í Garðabæ. Íbúðin skiptist í rúmgóða forstofu, bjarta stofu og borðstofu, opið eldhús með eyju, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með glugga, þvottahús innan íbúðar og rúmgóða 7,2 fm. geymslu í sameign.
Um er að ræða bjarta og vel við haldna eign í grónu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, náttúru, göngustíga og alla helstu þjónustu. Húsfélagið er gott og samstarf íbúa virkt.
Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.Nánari lýsing:Forstofan er rúmgóð með nýlegum PAX-skápahurðum og flísalögðu gólfi.
Eldhúsið er með vandaðri hvítri innréttingu frá AXIS, góðu skápaplássi, eyju, spanhelluborði, blástursofni og viftu. Rýmið opnast fallega inn í stofu og borðstofu, sem skapar bjart og notalegt heildarrými.
Stofan og borðstofan eru björt og rúmgóð, með útgengi út á skjólsælar 7 fm. suðvestursvalir sem snúa , sameiginlegum garði.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, rúmgott hjónaherbergi og tvö barnaherbergi, öll búin filmuðum hvítum fataskápum frá AXIS.
Baðherbergið er flísalagt með smekklegri innréttingu, vaski og sturtubaðkari með nýlegum blöndunartækjum. Innréttinging ásamt skáp bak við hurð, hefur verið filmuð hvít. Tengi fyrir sturtu er þegar til staðar á bak við skápinn, sem gefur möguleika á að bæta sturtu við síðar.
Þvottahús er innan íbúðar með vinnuborði, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er
7,2 fm að stærð, ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði eru sameiginleg fyrir framan húsið.
Eigninni hefur verið vel við haldið í gegnum árin að sögn seljanda, meðal annars:
2022: Þak yfirfarið og málað. Blöndunartæki í baðkari og sturtu endurnýjuð.
2021: Eldhús endurnýjað að hluta – nýr vaskur, bökunarofn og helluborð. Hvítt gler frá Íspan sett milli skápa og á borðplötu. Fataskápar og baðinnrétting filmuð af fagaðila. Íbúðin máluð í heild (loft og veggir), að þvottahúsi undanskildu.
2020: Þrýstijafnari endurnýjaður. Nýtt harðparket og gólflistar lagðir innan íbúðar.
2017: Húsið yfirfarið og málað að utan.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.