Elka lgf. s. 863-8813, Svavar lgf. s. 623-1717 og Fasteignasalan TORG kynna með stolti bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á fjórðu og efstu hæð í lyftuhúsi við Beykiskóga 19 á Akranesi.
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, opnu alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu innan íbúðar. Úr alrými er útgengt á suðursvalir með fallegu útsýni til Akrafjalls. Sérgeymsla fylgir á jarðhæð, þar sem einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Eignin er 73,5 m², þar af er íbúðin 71,4 m² og sérgeymsla á jarðhæð 2,1 m². Íbúðin er merkt 0402.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús: Opið að stofu og borðstofu, með ljósri innréttingu og eyju með góðu vinnuplássi. Lýsing er undir efri skápum. Ofn og helluborð eru í eyju og vifta yfir. Innbyggður ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél fylgir.
Stofa og borðstofa mynda bjart og samfellt alrými með eldhúsi. Gluggar á tvo vegu og útgengt á suðursvalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Með fataskáp og parketi á gólfi. Svefnherbergi: Með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir að hluta. Ljós innrétting með handlaug og borðplötu með marmaraáferð, upphengt salerni og sturta í gólfi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla innan íbúðar ásamt sérgeymslu á jarðhæð, merkt 0108, skráð 2,1 m².
Beykiskógar 19 er fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús með 11 íbúðum. Húsið er einangrað og klætt að utan. Sameiginlegur inngangur, stigagangur og lyfta eru í húsinu. Á jarðhæð eru sérgeymslur ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Byggingarár hússins er 2023.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:
Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, sími 863-8813, elka@fstorg.is.
Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, sími 623-1717, svavar@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.