ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Gjáhella 13, 221 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-07, fastanúmer 236-6038 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 146.5 fm.Um er að ræða vel skipulagt, gott iðnaðar- og lagerhúsnæði með íbúðarrými á efri hæð. Endabil í Hellnahrauni, sem er ört vaxandi iðnaðar- og þjónustusvæði í Hafnarfirði.
Stálgrindarhús og einangraðar samlokueiningar - viðhaldslétt.
Eign sem vert er að skoða.Bil nr. 107 er 146,5 fm. endabil á tveimur hæðum:Neðri hæðin er
71,4 fm. með um 4ra metra lofthæð og stórri innkeyrsluhurð (340*380).Einnig er hefðbundin inngönguhurð frá bílastæðinu (við hlið innkeyrslu).
Neðri hæðin er eitt rými, auk þess sem þar er salerni og lítil geymsla. Þar er lítið milli loft úr stálgrindar pöllum sem létt er að taka niður.
Efri hæð er skráð
71,6 fm og stigahús 3,5 fm. Inngangur á efri hæð er um sérinngang til hliðar við innkeyrsluhurð. Up
pi er fullbúin 3ja herb. íbúð. Eldhús- salernis- og baðaðstaða með innréttingum og gólfefnum, smart lýsingu og gluggum á tvo vegu auk þakglugga,
Íbúðin hentar vel til útleigu, með brunahólfi í einu herbergi með eldvarnarhurð.
Lóðin er frágengin með malbikuðum bílastæðum. Sérmerkt gámastæði fylgir eigninni, auk liðlega 40 fm. sérafnotareits framan við innkeyrsluhurð.
Húsið er stálgrindarhús á steyptum sökklum og hentar í fjölbreytta starfssemi.Nánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergsdóttir nemi til löggildingar fasteignasala, í síma
772-7930, tölvupóstur
halla@allt.is.Ásta María Jónasdóttir löggiltur fasteignasali. tölvupóstur
asta@allt.is Nánari lýsing eignar:Eldhús:
Stofa:
o.s.frv.:
Umhverfi:
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.