Háborg fasteignasala kynnir Grásteinsmýri 3 í Garðabæ
Um er að ræða nýbyggingu í litlu fjölbýli með lyftu. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með ál- og bambusklæðningu. Í boði eru góðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Útsýni er úr flestum íbúðum og timburverönd fylgir íbúðum á 1. hæð. Íbúðirnar afhendast án megingólfefna, en baðherbergi eru flísalögð að hluta. Næg bílastæði eru á lóð. Áætluð afhending íbúða er í nóvember/desember 2026.
Nánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir lgf :845-8958 eða jorunn@haborg.is, Katla Hanna Steed, lgf, s: 822-1661 eða katla@haborg.is og Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 eða thorunn@haborg.is
Nánari lýsing á íbúð 106 – 2ja herbergja
Íbúðin er 63,8 fm að stærð og þar af er geymsla 6,3 fm. Sérinngangur. Þegar komið er inn í forstofu tekur við gott skápapláss. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart, með góðum fataskápum. Baðherbergi er með glugga, góðri snyrtiaðstöðu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Alrými er mjög rúmgott og bjart, með opnu eldhúsi. Stofa er einnig björt og rúmgóð. Úr alrými/stofu er útgengt á verönd.
Grásteinsmýri 3 Garðabæ, hýsir 21 íbúð. Um að ræða nýjar, bjartar og vandaðar íbúðir með góðri lofthæð. Á Álftanesi fær fjölskyldan það besta úr tveimur heimum – rólegt og náttúrulegt fjölskylduumhverfi við sjóinn, en samt stutt í borgina, skóla, íþróttir og alla helstu þjónustu.
Innréttingar og búnaður
AXIS innréttingar í litnum Cashmere Grey með HPL borðplötum. AEG innbyggð heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakarofn. Helluborð 60 cm með viftu í innréttingu. Baðherbergi eru flísalögð að hluta. Grohe blöndunartæki eða sambærileg. Hurðir, lamir og hurðabúnaður frá Agli Árnasyni. Sér geymsla í kjallara og sameiginleg opin reiðhjóla- og vagnageymsla er í inngarði á milli húsa.
Staðsetning og nærumhverfi
Frábær staðsetning þar sem skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttahús eru í göngufæri. Ekkert skutl og engar götur sem þarf að fara yfir. Umhverfið er rólegt og fallegt og aðstaða fyrir fjölskyldufólk er framúrskarandi. Þá eru frábær útivistarsvæði við strandlengjuna. Hestamannafélagið Sóti og fallegar reiðleiðir eru einnig á svæðinu. Aðeins 4 mínútna akstur er frá ljósunum við Actavis.
Athugasemdir
Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á.
Athugið að myndir í auglýsingum eru settar fram til viðmiðunar. Á þeim kunna að koma fyrir einstök atriði, búnaður eða frágangur sem fellur ekki undir lokaútgáfu eða skilalýsingu fasteignarinnar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
Stimpilgjald af kaupsamningi er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. er kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar fer samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu er samkvæmt gjaldskrá.
Húsfélag:
Ekki hefur verið stofan húsfélag, en væntanlegir kaupendur kaupa til með að stofna það þegar þeir eru fluttir.
Nánari upplýsingar veitir Hrefna Harðardóttir, nemi til löggildingar, s:690-0751 / hrefna@haborg.is