Skráð 24. feb. 2023
Deila eign
Deila

Urriðaholtsstræti 40

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
108.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
86.900.000 kr.
Fermetraverð
800.922 kr./m2
Fasteignamat
72.600.000 kr.
Brunabótamat
80.630.000 kr.
Byggt 2022
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Aðgengi fatl.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2361778
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðar í húsi
4
Hæðar í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýbygging
Raflagnir
Nýbygging
Frárennslislagnir
Nýbygging
Gluggar / Gler
Nýbygging
Þak
Nýbygging
Svalir
Nei
Upphitun
Gólfhiti í íbúð
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: 

Íbúð 0101: Vel skipulögð, flott og vönduð þriggja herbergja 103,8 fm íbúð á fyrstu hæð ( jarðhæð ) með sér þvottahúsi í nýju 10 íbúða lyftufjölbýli við Urriðaholtsstræti 40, 210 Garðabæ.

Íbúð þessi er öll útbúinn á þann veg að hún sé aðgengileg fólki í hjólastólum og með henni fylgir stærra stæði í bílageymslu en hefðbundið bílastæði.

Steinn á borði, gólfhiti, innfelld blöndunartæki í sturtu, góð lofthæð og sérsmíðaðar innréttingar ásamt stórum sérafnotareiti, timburverönd með skjólveggjum. Gler rennihurð sem aðskilur stofu frá timburverönd. 

Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni merkt B02 ásamt 4,7 fm sér geymslu í sameign merkt 0104. Samtals heildarstærð á íbúð og geymslu er 108,5 fm.

Allar íbúðir í húsinu eru komnar með gólfefni. Á votrýmum eru flísar á gólfum og veggir flísalagðir að hluta þar sem á við. Parket og flísar koma frá Ebson ehf.

Smelltu á link til að skoða íbúð í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Nánari lýsing: 
Forstofa og gangur 
er með parket á gólfi og fataskápum sem ná upp í loft.
Stofa og borðstofa er í opnu alrými með eldhúsi. Parket á gólfi. Innfelld lýsing þar sem á við. Út frá stofu er gler rennihurð út á stóra timburverönd með skjólveggjum.
Eldhúsinnrétting er á einum vegg, bæði efri og neðri skápar með lýsingu þar á milli. Innréttingar ná upp í loft. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og frysti sem og uppþvottavél ( frontur fylgir með til að setja framan á uppþvottavél ) Bökunar-ofn og combi-ofn í vinnuhæð. Borðplata er ljós kvartssteins plata frá Granítsmiðjunni. Undirlímdur vaskur og spanhelluborð með kolasíuviftu þar fyrir ofan.
Þvottahús er við endan á eldhúsinnréttingu í sér rými. Innrétting með aðstöðu og tengingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gott skúffu- og skápapláss ásamt skolvaski. Flísar á gólfi.
Baðherbergi er með flísalagt gólf og flísalagða veggi að hluta. Upphengt salerni og handklæðaofn. Sturta með innfelldum blöndunartækjum og sturtugleri. Baðinnrétting er með skúffum og handlaug og speglaskáp þar fyrir ofan með borð lýsingu. Innfelld lýsing þar sem á við.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi og glugga á tvo vegu ásamt fataskápum sem ná upp í loft. Fyrir miðju á vegg þar sem fataskápar eru, þar er gert ráð fyrir tengi og aðstöðu fyrir sjónvarp. Innfelld lýsing þar sem á við.
Herbergi II er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Sér 4,7 fm geymsla staðsett á sömu hæð og íbúð, fylgir með íbúðinni.
Með íbúð fylgir stærra stæði í bílageymslu en hefðbundið bílastæði,  merkt B02.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Gólfhiti er á allri íbúðinni.

Innréttingar eru sérsmíðaðar frá VOKE3 frá Litháen. Léttir veggir eru gipsveggir. Borðplötur í eldhúsi eru ljósar kvartssteins plötur frá Granítsmiðjunni. Eldhústæki eru af gerðinni AEG frá Ormsson. Helluborð er AEG Spanhelluborð. Bakaraofn er AEG Veggofn, sjálfhreinsandi með kjötmæli. Combi ofn er AEG. Allt rafmagn full frágengið með innfelldum ljósum þar sem á við og skyldukúplum. 

Húsið er fjölbýlishús upp á fjórar hæðir byggt samkvæmt arkítektarteikningum Davíðs Kristjáns Pitt. Húsið er staðsteypt á hefðbundinn hátt úr járnbendri steypu. Húsið er einangrað að utan og klætt með ál, flísum og timburklæðningu. Þak er svokallað viðsnúið þak, ábræddur tjörupappi,  með vatnsþolinni einangrun. Þakkantur frágengin samkvæmt teikningu hönnuðar. Gluggar eru danskir álklæddir trégluggar frá Rationel. Gólfhiti er samkvæmt teikningu hönnuðar. Gólfhitalagnir eru ísteyptar á neðstu hæð hússins, á efri hæðum eru lagnir á einangrun og andrít flotað yfir gólfið. Lóð er sléttuð og tyrfð. Stígar hellulagðir með snjóbræðslu að hluta. Bílastæði á lóð eru fulllfrágengin.

Lóðarfrágangur var í höndum Lólalausna ehf.
Byggingaraðili er Vesturvík ehf.
Byggingarmeistari er Pétur Þórarinsson, Haghús ehf.
Byggingarstjóri er Anton Kjartansson, Verkþing ehf.

Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. Í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.

Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald, þegar það verður lagt á. Skipulagsgjald er 0,3% af brunabótamati íbúðar.

Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/11/202149.000.000 kr.773.300.000 kr.1151.9 m2671.325 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2023
Byggt 2022
Fasteignanúmer
2361778
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
2
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.630.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 42
Bílastæði
Urriðaholtsstræti 42
210 Garðabær
108 m2
Fjölbýlishús
312
786 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Nónhæð 6
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Nónhæð 6
Nónhæð 6
210 Garðabær
120.4 m2
Fjölbýlishús
413
697 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Bílastæði
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
119.2 m2
Fjölbýlishús
312
763 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Bílastæði
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
117.6 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache