Fasteignaleitin
Skráð 10. sept. 2026

Starhólmi 18

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
268.6 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
189.900.000 kr.
Fermetraverð
706.999 kr./m2
Fasteignamat
171.550.000 kr.
Brunabótamat
128.310.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1972
Garður
Pallur
Bílskúr
Hleðslustöð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2065393
Landnúmer
116082
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Myndaðar í Ágúst 2022
Gluggar / Gler
Gler og listlar endurnýjað að mestu
Þak
Endurnýjað þakjárn, pappi og timbur sem þörf var á
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Valhöll og Ingunn Björg lgf. kynna reisulegt einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr og aukaíbúð við Starhólma 18. Húsið stendur á einstaklega fallegum og rólegum stað innst í botnlanga í jaðri byggðar, þar sem engin byggð er fyrir aftan húsið og gróið umhverfið skapar einstaka kyrrð og næði. Aðkoma að eigninni er mjög góð með nægum bílastæðum fyrir framan húsið, bæði fyrir heimilisfólk og gesti. Spennandi kostur fyrir þá sem vilja sameina rúmgott fjölskylduhús með möguleika á góðum leigutekjum á einstökum stað. 
Skv. Hms er eignin skráð samtals 268,8 fm þar af er bílskúr skráður 24,5 fm.  Fasteignamat næsta árs er 178.050.000.

ATH ! EIGNIN VERÐUR EINGÖGNU SÝND Í EIINKASKOÐUN. Vinsamlega bókið skoðun á  ingunn@valholl.is eða í síma 856 3566. 


Efri hæð:
Gengið er upp tröppur að aðalinngangi hússins, við hlið inngangs er steypt verönd sem snýr til suðvesturs. Komið er inn í forstofu með góðum skápum og þaðan inn í bjarta og rúmgóða stofu með stórum gluggum sem veita góða birtu inn í rýmið. Inn af stofu er eldhús, aðgengi að því er frá tveimur rýmum, annars vegar úr stofu og hins vegar úr borðstofu. Úr borðstofu er útgengt á hellulagða verönd sem snýr ti suðvesturs og liggur meðfram hlið hússins og bakvið hús sem tengir innirýmið vel við fallegt og gróið útisvæði. Inn af eldhúsi er rúmgott og bjart þvottahús með glugga með opnanlegu fagi. Frá forstofu er gengið upp nokkrar tröppur í svefnherbergisálmu, þar sem eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi. 

Neðri hæð:
Gengið niður teppalagðan stiga með fallegum löngum glugga. Komið er inn í hol, frá holinu er gengið inn í rúmgott og bjart herbergi með fataskáp, frá holi er einnig aðgengi að salerni með handlaug. Sérinngangur er frá hlið hússins í þetta rými. 
Frá þessu rými er innangengt á gang sem liggur að bílskúr og aukaibúð. Einnig er innangengt í aukaíbúð frá gangi, jafnframt er sér inngangur við hlið bílskúrs í aukaíbúð, sem býður upp á góða aðgreiningu og sjálfstæða nýtingu hennar. 

Helstu framkvæmdir síðustu ára að sögn seljanda :
  • Hús sprunguviðgert og málað utanhúss 2025.
  • Tröppur múraðar ásamt palli við inngang 2024.
  • Hiti í bílaplani lagfærður og hitagrind yfirfarin 2022.
  • Rafmagnstafla endurnýjuð 2018.
  • Skipt um pappa og járn á þaki 2014 og 2016.
  • Gler hefur verið endurnýjað í öllum gluggum fyrir utan einn glugga í stofu og ekki hefur verið skipt um gler á norðurhlið húss. 
  • Tveir ofnar endurnýjaðir í stofu.
  • Innihurðar efri hæðar hafa verið endurnýjaðar. 
  • Fataskápar efri hæðar hafa veri endurnýjaðir.
  • Gólfefni á efri hæð endunýjuð í stofu, borðstofu, eldhúsi, holi fyrir framan svefnherbergi , forstofu og á stiga.
  • Loftaefni í stofu, borðstofu og gangi 2018.
  • Eldhús endurnýjað 1999, vatnslagnir í eldhúsi endurnýjaðar á sama tíma. 
Nánari upplýsingar veitir:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@valholl.is


Nánari lýsing eignar:

Efri hæð: 
Forstofa: Fataskápur, harðparket á gólfi. 
Stofa: Rúmgóð og björt með stórum gluggum, harðparket á gólfi.
Borðstofa: Björt með útgengi á hellulagða suðvestur verönd. Harðparket á gólfi. 
Eldhús: Bjart og rúmgott með eikarinnréttingu, mikið skápa og vinnupláss. Helluborð, bakaraofn, vifta og uppþvottavél. 
Þvottahús: Staðsett inn af eldhúsi, tenging fyrir þvottavél og þurrkara, hillur á vegg, gluggi með opnanlegu fagi. 
Gangur í svenherbergisálmu: Kókosteppi á gólfi. 
Hjónaherbergi: Bjart með mjög rúmgóðum fataskáp. Dúkur á gólfi. 
Herbergi 2: Einfaldur fataskápur, dúkur á gólfi.
Herbergi 3: Einfaldur fataskápur, dúkur á gólfi.
Herbergi 4: Einfaldur fataskápur, dúkur á gólfi.
Baðherbergi: Eldri innrétting, baðkar, salerni, dúkur á gólfi. Veggir málaðir. Gluggi með opnanlegu fagi. 

Neðri hæð - Rými 1: 
Teppalagður stigi sem liggur frá efri hæð.
Hol: Gólfdúkur á hluta gólfs. 
Herbergi: Rúmgott og bjart, einfaldur fataskápur, dúkur á gólfi. 
Snyrting: Málað gólf,handlaug, salerni.

Neðri hæð - Aukaíbúð
Forstofa: Teppi á gólfi.
Stofa: Rúmgóð stofa með glugga með opnanlegu fagi, parket á gólfi.
Eldhús: Rúmgott eldhús með ágætis innréttingu. Tengi fyrir þvottavél. Eldavél með helluborði. Dúkur á gólfi. Þrír gluggar, allir með opnanlegu fagi. 
Herbergi: Rúmgott herbergi með glugga með opnanlegu fagi, parket á gólfi.  
Baðherbergi: Baðkar með sturtu, handlaug, salerni, dúkur á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi.
Geymsla: Rúmgóð köld geymsla er í aukaíbúð, stærð 12 fm.

Bílskúr: Málað gólf, vaskur, heitt og kalt vatn, rafhleðslustöð, gluggi með opnanlegu fagi, stærð 24,5 fm. 

Lóð: Einstaklega falleg, skjólrík og gróðursæl 756 fm lóð umlykur húsið, með grasflöt, hellulagðri verönd og hellulögðum stígum að hluta sem skapa snyrtilegt og notalegt útisvæði. Samhliða lóðinni bakatil liggur gróðursælt og fallegt útivistarsvæði með göngustígum. 

Ath! Húsgögn og hlutir á nokkrum myndum eru tölvuteiknað.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1972
24.5 m2
Fasteignanúmer
2065393
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.660.000 kr.

Myndir (62)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabrekka 20
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Hjallabrekka 20
Hjallabrekka 20
200 Kópavogur
268 m2
Einbýlishús
725
627 þ.kr./m2
168.000.000 kr.
Skoða eignina Holtás 6
Bílskúr
Skoða eignina Holtás 6
Holtás 6
210 Garðabær
242.6 m2
Einbýlishús
624
1031 þ.kr./m2
250.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 31
Diddi_vefur (41).jpg
Skoða eignina Vorbraut 31
Vorbraut 31
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 39
Diddi_vefur (42).jpg
Skoða eignina Vorbraut 39
Vorbraut 39
210 Garðabær
270 m2
Raðhús
634
848 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin