Fasteignaleitin
Skráð 16. sept. 2026

Grímsgata 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
89.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
870.391 kr./m2
Brunabótamat
57.600.000 kr.
Byggt 2024
3. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25269499
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með suðursvölum við Grímsgötu 8 í Urriðaholti, Garðabæ.

Um er að ræða vel skipulagða eign með tveimur góðum svefnherbergjum, björtu alrými og vönduðum innréttingum. Eignin er á vinsælum stað í Urriðaholti þar sem stutt er í skóla, leikskóla, útivistarsvæði og alla helstu þjónustu. 

Birt stærð eignarinnar er 89,5 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er sérgeymsla á jarðhæð 4,1 fm.

Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi með innréttingu fyrir Combi AEG þvottavél sem fylgir. Eigninni fylgir sérgeymsla ásamt hlutdeild í sameign, sameiginlegri útigeymslu með hillum og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Allar gardínur og ljós fylgja.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is

Nánari lýsing

Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús með vandaðri innréttingu frá GKS trésmiðju, borðplötu úr kvartssteini og vönduðum eldhústækjum frá Siemens. Innbyggður kæli-/frystiskápur og innbyggð uppþvottavél sem fylgir, harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með útgengi á suðursvalir, harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu með Unidrain niðurfalli. Innrétting með Combi AEG þvottavél sem fylgir, flísar á gólfi.
Sérgeymsla á jarðhæð með máluðu gólfi.
Bílastæði utandyra með hleðslustöðvum.

Húsgjöld eignarinnar eru 24.614 kr. á mánuði og innifela meðal annars almennan rekstur húsfélags, hita, rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatryggingu, framkvæmdasjóð og þjónustukaup vegna reksturs húsfélags.

Grímsgata 8 er fimm hæða fjölbýlishús með einu stiga- og lyftuhúsi. Í húsinu eru 19 íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Aðalinngangur hússins er á jarðhæð og hafa allar íbúðir sérinngang af svalagangi. Á jarðhæð eru sérgeymslur, hjóla- og vagnageymsla, tæknirými og sorpgeymsla. Á 2.–5. hæð eru íbúðir með inngöngum af svalagöngum sem tengjast stiga- og lyftuhúsi.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði, í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is

Á heimasíðunni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flügger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 14 (302)
Opið hús:19. sept. kl 14:00-14:45
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (302)
210 Garðabær
70.1 m2
Fjölbýlishús
211
1054 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (104)
Opið hús:19. sept. kl 14:00-14:45
Vorbraut14.jpg
Vorbraut 14 (104)
210 Garðabær
115.6 m2
Fjölbýlishús
322
907 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Furugrund 70
Hleðslustöð
Opið hús:19. sept. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Furugrund 70
Furugrund 70
200 Kópavogur
72.8 m2
Fjölbýlishús
312
845 þ.kr./m2
61.500.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 37
Bílastæði
Opið hús:20. sept. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Holtsvegur 37
Holtsvegur 37
210 Garðabær
112.5 m2
Fjölbýlishús
413
826 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin