Fasteignaleitin
Skráð 21. okt. 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
235 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
47.100.000 kr.
Fermetraverð
200.426 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2000
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2039953
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir og Þaksvalir
Upphitun
Kæling/Hiti
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEG PENTHOUSE MEÐ ÚTSÝNI YFIR LAS RAMBLAS GOLFVÖLLINN, TIL SJÁVAR OG YFIR SUNDLAUGARGARÐINN* *SÉR INNGANGUR OG BÍLSKÚR* *40FM SVALIR OG 45FM ÞAKSVALIR* *AFHENDIST MEÐ HÚSGÖGNUM*

Rúmgóð og vel skipulögð eign með einstöku útsýni á hinum vinsæla Las Ramblas golfvelli, um 50 mín akstur suður af Alicante. Eignin er á tveimur hæðum, og með sameiginlegum sundlaugargarði.

Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, Sími 0034 615 112 869, berta@spanareignir.is


Á neðri hæð er svefnherbergi, baðherbergi og gestasnyrting. Rúmgott eldhús og stórar stofur, önnur stofan var áður þriðja svefnherbergið. Rúmgóðar 40 fm svalir eru frá stofu sem gefa eigninni mikla birtu. Á efri hæð er svefnherbergi og baðherbergi, ásamt 45 fm þaksvölum með glæsilegu útsýni. Eigninni fylgir 25 fm bílskúr.

Eignin er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romera, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf ofl. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Verð: 325.000 Evrur. (ISK 47.100.000,- miðað við gengi 1E=145ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um æfina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa  að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.

Eiginleikar: útsýni, air con, sundlaug, þaksvalir, svalir, bílskúr, golf, endursölueign,
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf, La Fuente
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
25 m2
Fasteignanúmer
2039953

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Lo Romero Golf
SPÁNAREIGNIR - Lo Romero Golf
Spánn - Costa Blanca
238 m2
Fjölbýlishús
423
198 þ.kr./m2
47.100.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Daya Nueva
SPÁNAREIGNIR - Daya Nueva
Spánn - Costa Blanca
188 m2
Einbýlishús
423
246 þ.kr./m2
46.300.000 kr.
Skoða eignina Fellsbraut 4
Bílskúr
Skoða eignina Fellsbraut 4
Fellsbraut 4
545 Skagaströnd
222.8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
716
206 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Skoða eignina Völusteinsstræti 28
Völusteinsstræti 28
415 Bolungarvík
220 m2
Einbýlishús
624
205 þ.kr./m2
45.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin