Fasteignaleitin
Skráð 3. sept. 2026

Eyrargata 46

Atvinnuhúsn.Suðurland/Eyrarbakki-820
72 m2
3 Herb.
Verð
47.900.000 kr.
Fermetraverð
665.278 kr./m2
Fasteignamat
10.530.000 kr.
Brunabótamat
40.350.000 kr.
Mynd af Snorri Sigurfinnsson
Snorri Sigurfinnsson
Löggiltur fasteignasali
8648090husfasteign.isEignalisti
Byggt 1887
Jarðhæð
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2200110
Landnúmer
165952
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
1999
Raflagnir
1999
Frárennslislagnir
1999
Gluggar / Gler
1999
Þak
1999
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Í mestu rigninum getur smitað vatni undir útidyrahurð. 
Afgreiðsluborð er að mestu í eigu Byggðasafns Árnesinga. Ef kaupandi áformar að nota borðið áfram er möguleiki að það fái að standa í samráði við forstöðumann Byggðasafnsins en að öðrum kosti þarf að skila því. 
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu. Laugabúð eða öðru nafni Sjónarhóll, Eyrargötu 46 Eyrarbakka. Sögufrægt verslunarhús á Eyrarbakka frá 1886. Rétt við "Húsið" (1765), sem hýsir Byggðasafn Árnesinga.
Eyrargata 46 var endurbyggð 1998-1999 og færð í það form sem húsið var 1919 sem verslunarhús.

Bókið einkaskoðun hjá fasteignasala.

Nánar um eignina:
Húsið er 74 m2 að stærð skv teikningu, á þremur hæðum. Fyrsta hæð er 37,5 m2, rishæð 13,5 m2 og kjallari 23,0 m2. (kjallari er 21 fm skv fasteignaskrá) Tvö bílastæði eru afmörkuð í deiliskipulagi fyrir framan húsið – lítill, gróinn bakgarður aftan við húsið.  Lóðin er leigulóð frá sveitarfélaginu 117 fm.
Í húsinu er verslunarrými á jarðhæð, eitt herbergi í risi.  Í skúrbyggingu er skrifstofuherbergi, salerni og lítill eldhúskrókur (án eldavélar) og geymsla í kjallara með inngöngu utan frá og úr verslunarrýminu.
Húsið var byggt sem íbúðarhús árið 1886 (1887 í fasteignaskrá) og var einlyft, grindarbyggt timburhús á hlöðnum kjallara með timburklæðningu og bárujárnsþaki. Árið 1896 var þakinu breytt í mansardþak og árið 1897 var byggður skúr norðanvert við húsið. Árið 1919 var húsinu breytt í verslun og settir búðargluggar og dyr á framhliðina. Árið 1950 voru byggð íbúðarrými ofan á og aftan við húsið. Þá voru jafnframt gerðar endurbætur á sökklinum og kjallaranum og hann hlaðinn upp með vikurholsteini.
Á árunum 1998 og 1999 var viðbyggingin frá 1950 rifin niður og húsið fært í það horf sem það var í árið 1919 sem verslunarhús. Þá fóru fram gagngerar endurbætur á húsinu öllu – gert við grind og timburklæðningar á veggjum, þakgrind endurgerð með nýju timbri, allt einangrað að nýju með steinull og húsið allt klætt nýju bárujárni, bæði þak og veggir. Grunnur var styrktur með steinsteypu. Allir gluggar voru einnig endurnýjaðir með tvöföldu gleri í búðargluggum en einföldu gleri í öðrum gluggum. Raflögn var öll endurnýjuð og lagðar nýjar hita- og vatnslagnir um húsið.
Húsið var allt síðast málað að utan árið 2018.

Fjölbreyttir notkunarmöguleikar. Eyrargata 46 stendur á svokölluðu miðsvæði á Eyrarbakka (skv. deiliskipulagi) þar sem eru m.a. íbúðarhús allt í kringum húsið og atvinnurekstur og Byggðasafn í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090
Bókið einkaskoðun.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.




 

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hásteinsvegur 61
Hásteinsvegur 61
825 Stokkseyri
55.2 m2
Atvinnuhúsn.
324 þ.kr./m2
17.900.000 kr.
Skoða eignina Mosabraut 4 hektarar
Mosabraut 4 hektarar
851 Hella
83 m2
Sumarhús
3
1083 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Straumhella 10L
01-(5).jpg
Skoða eignina Straumhella 10L
Straumhella 10L
221 Hafnarfjörður
57.4 m2
Atvinnuhúsn.
1
479 þ.kr./m2
27.500.000 kr.
Skoða eignina Bronsslétta 3o
Skoða eignina Bronsslétta 3o
Bronsslétta 3o
162 Reykjavík
68.3 m2
Atvinnuhúsn.
520 þ.kr./m2
35.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin