Fasteignaleitin
Skráð 8. maí 2026

Öldugata 47

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
81 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.900.000 kr.
Fermetraverð
1.011.111 kr./m2
Brunabótamat
41.950.000 kr.
Byggt 1925
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20011411
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Landmark fasteignamiðlun og Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignaslai s. 896 6160 kynna eignina Öldugata 47, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 200-1141 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Öldugata 47 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-1141, birt stærð 81.0 fm.

Sjarmerandi og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð í hjarta gamla Vesturbæjarins á annarri hæð í 3ja hæða fjölbýlishúsi með sameiginlegum inngangi. Eignin sameinar klassískan Vesturbæjarsjarma og nútímaleg þægindi á einstaklega eftirsóttum stað.

Upplýsingar um eign og bókun á skoðun:
Erla Friðriksdóttir lögg.fasteignasali s. 896 6160 eða erla@landmark.is

Inngangur: Sameiginlegur.
Eldhús: Endurnýjað 2022 með fallegri innréttingu og góðu vinnuplássi. Innbyggður ísskápur, vínskápur og uppþvottavél. Gólf parketlagt og einangrað. Gengið út á svalir sem settar voru 2024 og snúa til suðurs.
Herbergi I: Rúmgott svefnherbergi með skápum og gólfborðum.
Herbergi II: Inn af stofu er herbergi með gólfborðum, sem hentar vel sem barnaherbergi, skrifstofa eða gestaherbergi.
Stofa: Er með hlýlegu yfirbragði og gólfborðum. Nýlega var enduropnað fyrir hornglugga í stofunni sem gefur rýminu aukna birtu og meiri sjarma.
Baðherbergi: Baðkar, innrétting og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Aukarými: Á fyrstu hæð fylgir sérgeymsla sem hefur verið nýtt sem vinnuherbergi. Gólfið er flotað og loft einangrað, útveggir ekki einangraðir. Einnig er sameiginlegt þvottahús í húsin. Sér óskráð 2 fm geymsla undir stiga í sameign.

Viðhald og endurbætur:
Samkvæmt upplýsingum frá eigendum var skipt um hitalagnir árið 2018. Tenglar hafa verið endurnýjaðir og ofnar að hluta. Ástand frárennslislagna var kannað árið 2002 og aftur haustið 2025 og engar athugasemdir gerðar. Ástand glugga og þaks var kannað haustið 2025. Engar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á húsinu. 
Á síðustu misserum (2025-2026) hefur farið fram umfangsmikið viðhald og endurbætur á húsinu að utan.

Helstu framkvæmdir:
  • Sprunguviðgerðir á steypu og múr
  • Viðgerðir á ryðskemmdum
  • Fínhúðun/slípun á útveggjum
  • Háþrýstiþvottur á útveggjum
  • Málun á útveggjum hússins
  • Málun á gluggum, körmum og listum
  • Viðhald og málun á þaki
  • Viðgerðir á þakjárni
  • Viðhald og málun á skorsteinum
  • Blikksmíði og uppsetning blikkhatta
  • Endurnýjun á gleri og glerlistum á völdum gluggum
  • Uppsetning snjóstoppara á þaki
  • Ýmis smíðaviðhald og timburviðgerðir
Staðsetning:
Öldugata er í hjarta gamla Vesturbæjarins, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, kaffihús, verslanir og falleg útivistarsvæði við sjóinn. Einstaklega eftirsótt staðsetning þar sem borgarlíf og rólegt hverfisumhverfi fara saman.

Eignaskiptasamningur:
02-01 72,3m² íbúð á 2. hæð ásamt hlutdeild í sameign hússins og þvottahúsi, 8,7m² geymslu og hlutdeild í sameign eininga 01-01-01 og 01-02-01  = 33,58%
Nýr eignaskiptasamningur fyrir húsið er í vinnslu.

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Haukahlíð 2
Skoða eignina Haukahlíð 2
Haukahlíð 2
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 2 - íbúð 320
Haukahlíð 2 - íbúð 320
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 12
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 12
Valshlíð 12
102 Reykjavík
78 m2
Fjölbýlishús
211
1024 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Sóleyjarimi 7
112 Reykjavík
61 m2
Fjölbýlishús
211
982 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin