Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu íbúð á jarðhæð ásamt bílskúr/stúdíóíbúð, við Bröttuhlíð 1A, 810 Hveragerði.
Eignin er samtals 140,6 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands.
Íbúðin 106,8 m² og bílskúrinn 33,8 m².
Eignin telur forstofa, þrjú svefnherbergi, eitt baðherbergi, eldhús og stofa.
Þá er bílskúr sem breytt hefur verið í stúdíó íbúð með eldhúsi og baðherbergi. Þar er einnig geymsla.
Eignin er staðsett við útivistarparadís Hvergerðinga en fjölmargar göngu- og hjólaleiðir eru í nágrenni.
Sjá staðsetningu hér:
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Nánari lýsing eignar:Forstofa komið er inn í flísalagða forstofu sem er í sameign með efri hæð.
Frá forstofu er gengið inn í hol sem leiðir okkur að svefnherbergjum til hægri en stofu og eldhúsi til vinstri.
Eldhús er í opnu rými með stofu. Þar er góð eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, eyja með helluborði og góðri vinnuaðstöðu. Bakarofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur. Grár steinn á eyju og borðplötu. Frá eldhúsi er útgengt á baklóð.
Stofa í opnu rými frá eldhúsi. Parket á gólfi og útgengt frá stofu út á hellulagða verönd að framanverðu.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf & gólf með ljósum flísum. Upphengt wc, baðkar með sturtu og innrétting með handlaug.
Þvottahús er inn af baðherbergi, einnig flísalgt í hólf & gólf.
Bílskúr er í dag að hluta til innréttaður sem
stúdíó íbúð. Þar er lítil innrétting með eldhúsvask og ísskáp, baðherbergi með sturtuklefa, upphengt wc og innrétting með handlaug.
Hægt er að hafa góðar leigutekjur af útleigueiningunni.
Hellulagt bílaplan er við eignina.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.