Fasteignaleitin
Skráð 4. sept. 2026

Túngata 36A

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
202.7 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
199.000.000 kr.
Fermetraverð
981.746 kr./m2
Brunabótamat
105.450.000 kr.
Byggt 1937
Svalir
Pallur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2002185
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Margir inngangar

Miklaborg kynnir: Einstaklega smekklega endurnýjað og glæsilegt parhús við Túngötu í 101 Reykjavík. Eignin hefur nýlega gengið í gegnum afar viðamikla og vandaða endurnýjun (2024–2026) þar sem lögð var áhersla á hágæða efnisval, betra flæði og fágun í hverju smáatriði. Hér hefur tekist að sameina virðuleika hússins og nútíma þægindi. Í hluta kjallara er góð tveggja herbergja íbúð með sérinngangi, býður uppá frábærar útleigu tekjur, en einnig er hægt að nýta þennan hluta með heildareigninni. Lóðarframkvæmdir: Garðurinn var tekinn í gegn, blómabeð voru hækkuð og römmuð inn með fallegum hleðslusteinum, byggður var pallur undir nýtt 3 hólfa sorptunnuskýli. Útveggur lóðar var múraður og lagfærður, einnig var múraður kantur og er garður hússins glæsilegur.
Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Komið í forstofu, frá henni gengt í baðherbergi  með fallegri innréttingu, vegghengdu salerni, rúmgóðri sturtu og handklæðaofni. Samliggjandi stofur eru opnar við eldhús, bjart og fallegt rými. Eldhúsið er velbúið tækjum með innbyggðum ísskáp, frystiskáp og uppþvottavél. Þar er gaseldavél, skemmtilegur horngluggi þar sem er borðaðstaða. 2.hæð: Góður parketlagður stigi upp á aðra hæð, þar er hol með útgengi á vestursvalir með góðu útsýni. Hjónaherbergi er mjög rúmgott og baðherbergi er inn af því. Á hæðinni eru tvö önnur rúmgóð svefnherbergi.
Háaloft: Niðurfellanlegur stigi upp á einangrað geymsluloft er á stigapalli. Kjallari: Gengið er niður í hluta af kjallara úr forstofu, þar er hol, önnur forstofa, þvottahús og geymsla. Að auki er 2ja herbergja íbúð með sérinngang. Í henni er endurnýjað eldhús og bað.

Helstu framkvæmdir og endurnýjanir að innan:
Skipulag og flæði: Veggir í forstofu voru felldir til að stækka rýmið verulega. Við þetta myndaðist frábært flæði inn í húsið og náttúruleg birta fær að njóta sín. Stiginn milli hæða var sömuleiðis tekinn alveg í gegn og glæsilega parketlagður.
Gólfefni og hitakerfi: Undirvinna gólfa var unnin af mikilli nákvæmni og öll gólf flotuð. Nýtt gólfhitakerfi var lagt í alla miðhæð hússins til að tryggja jafnan og þægilegan hita, auk þess sem fræst var fyrir gólfhita á völdum svæðum á jarðhæð. 
Innréttingar og sérsmíði: Öllum innréttingum í húsinu hefur verið skipt út á síðustu misserum. Á miðhæðinni er stórglæsilegt nýtt eldhús með sérsmíðuðum innréttingum. Á efstu hæð er fataherbergi og skrifstofa fullbúin með nýjum sérsmíðuðum innréttingum, ásamt nýjum skápum í svefnherbergi.
Þvottahús: Rýmið var tekið alveg í gegn; skipt var um allar innréttingar og settur upp nýr, sérstaklega stór vaskur sem eykur notagildi rýmisins til muna.
Lagnir, rafmagn og baðherbergi: Allt rafmagn í húsinu var yfirfarið ítarlega og endurnýjað eftir þörfum. Hitaveitugrind var yfirfarin og lagfærð, og allar hitalagnir yfirfarnar. Neysluvatnslagnir í kjallara voru endurnýjaðar. Öll salerni og sturtutæki í húsinu voru yfirfarin og endurnýjuð eftir þörfum.
Gluggatjöld: Flest öllum gardínum í húsinu var skipt út fyrir nýjar og vandaðar lausnir.
Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/12/2023115.950.000 kr.155.000.000 kr.202.7 m2764.676 kr.Já
08/04/201994.300.000 kr.114.000.000 kr.202.7 m2562.407 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (65)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturvin V1 - íbúð 508
Opið hús:07. nóv. kl 13:00-14:00
Vesturvin V1 - íbúð 508
101 Reykjavík
71,1 m2
Fjölbýlishús
211
1172 þ.kr./m2
83.300.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V3 íb 702
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:07. nóv. kl 13:00-14:00
Vesturvin V3 íb 702
101 Reykjavík
154,2 m2
Fjölbýlishús
312
1524 þ.kr./m2
235.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 601
Bílastæði
Opið hús:07. nóv. kl 13:00-14:00
Vesturvin V1 íb 601
101 Reykjavík
157,5 m2
Fjölbýlishús
322
1238 þ.kr./m2
195.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 509
Bílastæði
Opið hús:07. nóv. kl 13:00-14:00
Vesturvin V1 íb 509
101 Reykjavík
100,2 m2
Fjölbýlishús
322
1248 þ.kr./m2
125.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin