** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt 204,7 m2, 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með stórum bílskúr við Ásland 3 í Mosfellsbæ.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, gestasnyrtingu, fimm svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Stór timburverönd með heitum potti og útisturtu. Fallegur garður. Stórt hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Eignin sem er byggð árið 2005 er skráð skv. þjóðskrá 204,7 m2, þar af einbýli 147,1 m2 og bílskúr 57,6 m2.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Neðri hæð:
Forstofa með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Stofa/borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu flísalögðu rými. Eldhúsið er með fallegri L-laga innréttingu og eyju með miklu skápa- og vinnuplássi, ofn í borðhæð, gas helluborði, háfi og innfelldri uppþvottavél.
Stofan er með stórum gólfsíðum glugga og er því virkilega björt. Útgengi er út á timburverönd til suðurs með heitum potti og útisturtu. Garðurinn er mjög gróinn og fallegur.
Gestasnyrting er með flísalögðu gólfi, upphengdu salerni og viðarinnréttingu.
Teppalagður stigi með gler handriði liggur upp á efri hæð. Af stigapalli er útgengi út á timburverönd til austurs.
Bílskúr er með flísalögðu gólfi, heitu og köldu vatni og rafmagnsopnun á innkeyrsluhurð. Hellulagt plan framan við húsið er með hitalögn.
Efri hæð:
Herbergi 1 hjónaherbergi með parketi og fataskáp.
Herbergi 2 svefnherbergi með parketi á gólfi.
Herbergi 3 rúmgott svefnherbergi með parketi og fataskáp.
Herbergi 4 rúmgott svefnherbergi með parketi og fataskáp.
Herbergi 5 er notað sem sjónvarpsherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, flísalagðri sturtu, baðkeri og viðarinnréttingu.
Þvotthús er með flísum á gólfi og viðarinnréttingu, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Verð kr. 142.500.000,-