Fasteignaleitin
Skráð 4. apríl 2026

Dynskógar 14

EinbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
151.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
79.000.000 kr.
Fermetraverð
520.765 kr./m2
Fasteignamat
59.500.000 kr.
Brunabótamat
76.150.000 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2210143
Landnúmer
171170
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Hitalagnir og ofnar endurnýjað
Raflagnir
Tafla, rofar, tenglar endurnýjað
Frárennslislagnir
Endurnýjað
Gluggar / Gler
Gler endurnýjað
Þak
Þakjárn endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Stór suður
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason Lögg.fasteignasali sími  899 9787 kynna: Vel staðsett 151,7 m² einbýli á einni hæð í Hveragerði. Mikið endurnýjuð eign. Gróin falleg útivistarsvæði innan seilingar.   

Nánari lýsing:

Forstofa með fataskáp.
Baðherbergi 1 við hlið forstofu, upphengt salerni, sturtuklefi og tenging fyrir þvottavél.
Hol/gangur miðsvæðis í eigninni og eru þrjú svefnherbergi við hann.
Herbergi 1 rúmgott með glugga að bakgarði
Herbergi 2 stórt herbergi með fataskápum og glugga að bakgarði
Herbergi 3 mjög stórt hjónaherbergi.
Baðherbergi 2 er inn af hjónaherbergi og það með sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu. Lítið mál er að bæta við hurð út á gang með því að opna gamalt hurðargat.
Rúmgóð og björt stofa með gluggum á tvo vegu og hurð út á stóra suðurverönd.
Eldhús með fallegri viðarinnréttingu og ljósri borðplötu með innfelldum vöskum, borðkrókur við glugga.
Inn af eldhúsinu er búr með fínni innréttingu með góðu skápaplássi.
Lagnakjallari er undir húsinu og því einfalt að gera breytingar og lagfæringar,
Bílskúr 46.3 m², er hann tvískiptur í tvö teng rými og gert er ráð fyrir stórum glugga í honum sem snýr að bakgarði og bíður það upp skemmtilega möguleika eins og vinnustofu eða gistirými. Gólf bílskúrsins er malarborið.
Stór verönd er í sólríkum suðurgarði. Garðurinn er sérlega fallegur og vel hirtur og fjölbreyttur gróður, liggur hann að óbyggðum reit milli húsa sem gerir enn mæra næði í bakgarðinum.

Endurbætur, eignin hefur fengið gott viðhald og er mikið endurnýjuð.
Þakjárn endurnýjað 2013
Klæðning á útveggjum endurnýjuð 2013
Rafmagnstafla, tenglar og rofar endurnýjaðir.
Frárennslislagnir endurnýjaðar
Ofnalagnir endurnýjaðar ásamt ofnum
Gler endurnýjað.

Staðsetning er frábær efst í bænum við Hamarinn, óbyggt gróið svæði liggur að bakgarði og handan götunnar er stórt leiksvæði fyrir börn, Hamarinn eitt helsta kennileiti bæjarins er einnig handan götunnar og eru hlíðarnar þaktar fallegum trjágróðri. Stutt göngufæri er í sundlaugina. Mikil þjónust er í Hveragerði, góðir veitingastaðir, Bónusverslun, bakarí og margskonar verslanir og þjónusta.
 
Þetta er sérlega snyrtileg og vel umgengin eign með frábæra útiaðstöðu á einum besta stað í Hveragerði.

Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is.

 
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/05/201215.750.000 kr.17.400.000 kr.176 m298.863 kr.
11/11/201110.100.000 kr.8.000.000 kr.182 m243.956 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Gimli fasteignasala
http://www.gimli.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gautavík 30
Skoða eignina Gautavík 30
Gautavík 30
112 Reykjavík
122.5 m2
Fjölbýlishús
413
734 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 8 -205
Bílastæði
Apalskarð 8 -205
221 Hafnarfjörður
86.1 m2
Fjölbýlishús
413
835 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Ásbúð 15
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Ásbúð 15
Ásbúð 15
210 Garðabær
199.3 m2
Einbýlishús
614
827 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Tröllaborgir 17
Opið hús:07. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Tröllaborgir 17
Tröllaborgir 17
112 Reykjavík
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
834 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin