Björt og vel skipulögð 4ra herbergja sérhæð í þríbýlishúsi við Nýbýlaveg 86.Húsið hefur fengið mikið viðhald síðustu ár
* Laus strax
* Útleigumöguleiki með studio-herbergi
* Frábær staðsetning
* SérinngangurViðhald eignar síðastliðin ár tiltelur ma.:2000 voru raflagnir endurnýjaðar
2020 var dren og frárennslislagnir endurnýjaðar
2020 var þak lagfært og málað. Það verður yfirfarið / málað nú aftur í maí 2026. Greiðist af seljanda.
Neysluvatns og ofnalagnir hafa einnig verið endurnýjaðar á sl. árum.
Nánari upplýsingar veita:Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð samkv. HMS er 115,30 m2. ath sérgeymsla í sameign um 6 m2 er óskráð í birtum fermetrum svo heildarstærð væri raun nær. 121,3 m2.
Eignin skiptist í forstofu, studio- herbergi, eldhús, stofu / borðstofu, svalir, baðherbergi, 2 svefnherbergi, sérgeymslu og sameiginlegt þvottahús.Forstofa er flísalögð.
Studio - herbergi er með parket á gólfi, eldhúsinnréttingu og þar fyrir innan er baðherbergi með sturtu og wc.
Eldhús er með flísum á gólfi. U-laga innréttingu með tengi fyrir uppþvottavél, helluborði, viftu og ofn í vinnuhæð. Bjartur borðkrókur við glugga.
Stofa / borðstofa er með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með wc, innréttingu með skolvaski og baðkari með sturtu. Gólfhiti.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskáp. Útgengt út á
svalir.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Í sameign í kjallara er
Sérgeymsla skráð um 6 m2 samkv. eignaskiptayfirlýsingu og sameiginlegt
þvottahús.
Góð bílastæði fyrir framan húsið og gróinn garður.
Geymsluskúr er í garði, um 12 m2
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.