Björt og falleg 4ja herbergja íbúð á 2. hæð við Skyggnisholt 10 í Vogunum-Íbúðin er 85,7m² skv. HMS og eru allir fermetrar innan íbúðar-Svalir í suður
-Í eftirsóttu stækkandi hverfi í VogunumNánari upplýsingar veita:Orri Hilmarsson astmf. S: í 615-3011 eða orri@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurNánari lýsing:
Forstofa: er með flísum á gólfi, fataskáp, glugga og útidyrahurð með glugga sem hleypir birtu inn.
Stofa: parketlagt gólf, björt og rúmgóð stofa, gengið út á svalir úr stofu.
Eldhús: með viðarinnréttingu frá Parka, span helluborð, ofn, uppþvottavél, og pláss fyrir ísskáp.
Hjónasvefnherbergi: rúmgott parketlagt svefnherbergi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi 2: rúmgott svefnherbergi með skápum, parketlögðu gólfi, svartar veggþiljur.
Herbergi/Geymsla: , parketlagt lítið herbergi sem hægt er að nota sem svefnherbergi eða geymslu.
Baðherbergi: flísalagt gólf, hvítar flísar á veggjum, með sturtu, handklæðaofn, upphengt klósett, pláss fyrir þurrkara og þvottavél upphengt klósett.
Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla.
Búið er að leggja fyrir hleðslustöð fyrir rafbíl.
Flott staðsetning þar sem það er stutt í helstu þjónustu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.