ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Vesturbraut 21, birt stærð 164.2 fm. Einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Möguleiki er að skipta eigninn upp í tvær aðgreindar íbúðir.
Íbúðarhús er byggt árið 1914 skv fasteignaskrá og bílskúr sem er 28 fm að stærð byggður 1988.Nánari upplýsingar veitia:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.Efrihæð birt stærð 80.7 fm: Forstofa, baðherbergi, eldhús og stofa ásamt tveimur svefnherbergjum
Neðihæð birt stærð 55.5 fm: stigi af efrihæð, hol, þvottahús/geymsla, tvö herbergi og útgengi út á baklóð eignar.
Bílskúr 28 fm með rafmagni og heitu og köldu vatni
Skv seljanda hefur verið endurnýjað járn á þaki, ásamt burðavirki og pappa. Allir gluggar og hurðar hafa verið endurnýjaðar. Inntök og frárennsli hafa verið endurnýjuð og hluti af rafmagni. Skipulagi svæðis hefur verið breytt og er heimild að byggja ofan á eignina og eru til grunn teikningar fyrir því sjá merkingar H i skipulagsuppdrætti.
Sjarmerandi eign sem henntar fyrir aðila sem hafa áhuga að endurbæta og gera að góðri eign. Eignin er klædd með báruklæðningu, lóð er gróin og afgirt. Staðsetning eignar er á góðum og skjólsömum stað.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.