VALBORG fasteignasla kynnir í einkasölu Hjallabrún 25, 810 Hveragerði.
Um er að ræða fimm herbergja parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Eignin er samtals 160,2 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Í
búðin er skráð 131,7 m² og bílskúrinn 28,5 m²
Íbúðin telur forstofu, stofu, alrými með sjónvarpsholi, eldhúsi, borðstofu og stofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, bílskúr sem innangengt er í úr þvottahúsi og geymslu inn af bílskúr.
Gólfhiti er í öllum rýmum.
Í garðinum er aflokaður pallur sem snýr í suður.
Leikskólinn Undraland er í göngufæri sem og fallegar gönguleiðir við Reykjafjall, Ölfusborgir, Varmá og fleira.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Lýsing eignar:Forstofa er parketlögð. Frá forstofu er innangengt þvottahús og þaðan áfram inn í bílskúr.
Alrými er opið og bjart en þar er eldhús, stofa, borðstofa og sjónvarpshol.
Eldhús er með grárri innréttingu. Gott skúffu- og skápapláss sem og mikið vinnupláss. Helluborð, bakarofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskapur.
Stofa/borðstofa bjart rými með gólfsíðum gluggum. Frá stofu/borðstofu er eru útgengt á timburverönd.
Hjónabergi rúmgott með góðum Ikea fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi I og II tvöfaldur fataskápur í báðum herbergjum, parket á gólf.
Forstofuherbergi parket á gólfi, án fataskápa.
Baðherbergi I er flísalagt, upphengt wc, frístandandi baðkar, skápur, innrétting með handlaug og góðu skápa- og skúffupláss og spegill með lýsingu.
Baðherbergi II er flísalagt, upphengt wc, "walk-in" sturta, innrétting með handlaug og skúffuplássi, speglaskápur með lýsingu.
Þvottahús innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, gott skápapláss og skolvaskur. Flísar á gólfi.
Bílskúr: Innkeyrsludyr og gönguhurð er í bílskúrnum, en inn af bílskúr er geymsla/vinnuherbergi.
Úti er skjólgóður og afgirtur suðurpallur.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.